Landspítali
Landspítali
Landspítali

Teymisstjóri í aðfangaþjónustu

Við leitum að leiðtoga sem vill láta hugmyndir verða að framkvæmd og móta þróun deildaþjónustu sem teymisstjóri deildaþjónustu Landspítala. Framundan eru breytingar á skipulagi, þróun nýrra verkferla og innleiðing kerfa sem gera birgðastýringu einfaldari og þjónustuna skilvirkari. Hér færð þú tækifæri til að hafa bein áhrif á daglegt starf spítalans og létta undir með klínísku starfsfólki svo það geti einbeitt sér að umönnun sjúklinga.

Deildaþjónusta telur um 20 starfsmenn og hefur vaxið hratt. Teymið sér um birgðastýringu, pantanir og áfyllingu rekstrarvara og líns á deildum, auk afgreiðslu og áfyllingar starfsmannafatnaðar í fataafgreiðslum spítalans. Allar legudeildir eru þegar komnar í þjónustu og næstu skref felast í að styrkja starfsemina og taka fleiri deildir inn.

Sem teymisstjóri leiðir þú bæði daglegan rekstur og þróun þjónustunnar. Þú heyrir beint undir deildarstjóra aðfangaþjónustu og ert hluti af stjórnendateyminu þar, í nánu samstarfi við vöruhús, þvottahús og flutningaþjónustu.

Þróun starfseminnar

Deildaþjónusta býður upp á spennandi tækifæri til þróunar og þú færð mikilvægt hlutverk í að móta næstu skref. Í samráði við stjórnendateymi aðfangaþjónustu hefur þú svigrúm til að koma með eigin hugmyndir, þróa skipulag og verkferla og forgangsraða verkefnum út frá þörfum þjónustunnar.

Möguleg verkefni gætu meðal annars snúist um sjálfvirkari birgðastýringu, þar sem pantanir á vörum og líni verða til út frá þörf deilda, eða aukinn rekjanleika sem veitir betri yfirsýn yfir aðfangakeðjuna. Þróunin byggist á samstarfi við teymið, deildir spítalans og aðrar einingar aðfangaþjónustu.

Hér færð þú að fylgja hugmyndum frá greiningu og hönnun til innleiðingar og sjá áhrif þeirra í daglegum rekstri. Við leitum að leiðtoga sem nær fólki með sér og hefur áhuga á að tengja saman fólk, ferla og tækni til að bæta þjónustuna.

Öll verkefni þurfa að styðja við þjónustu á nýjum Landspítala (NLSH), samhliða áframhaldandi þjónustu á öllum núverandi þjónustustöðvum. Því þarf að þróa lausnir sem nýtast heildarstarfseminni og undirbúa teymið fyrir breytt starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og skipulag teymisins
  • Skipulag vakta, mönnunar og leyfa í samráði við deildarstjóra
  • Þjálfun og móttaka nýrra starfsmanna
  • Umsjón með birgðastýringu, pöntunum og áfyllingum á deildir spítalans
  • Stýra breytingum og umbótaverkefnum til að auka skilvirkni og hagkvæmni í þjónustuferlum
  • Þróun og innleiðing nýrra verkferla, kerfa og sjálfvirkra lausna í samstarfi við aðrar einingar aðfangaþjónustu
  • Tryggja eftirfylgni þjónustusamninga og gott samstarf við deildir spítalans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, viðskiptafræði, tölvunarfræði eða annað
  • Reynsla af stjórnun og hæfni til að leiða teymi
  • Reynsla af breytingastjórnun, umbótaverkefnum eða innleiðingu ferla og kerfa er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum, birgðastýringu eða starfi á heilbrigðisstofnun er kostur
  • Góð tölvukunnátta og greiningarhæfni, skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, þjónustulund og jákvætt viðhorf ásamt heiðarleika og ábyrgð
  • Færni til að tjá sig á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Advertisement published16. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
ÍslenskaÍslenska
Required
Framúrskarandi
EnskaEnska
Required
Mjög góð
Location
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (29)
Landspítali
Ljósmóðir á fæðingarvakt
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á almenna endurhæfingardeild aldraðra L2
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á gjörgæslu Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Læknir - Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali