
AÞ-Þrif ehf.
AÞ-Þrif ehf er ungt og framsækið hreingerningafyrirtæki með í kringum 250 starfsmenn af 30 þjóðernum og býður upp á almenna og sérhæfða þjónustu þegar kemur að þrifum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. AÞ-Þrif er vaxandi fyrirtæki og við erum sífellt að leita að fleira fólki til að bætast í starfsmannahópinn.
AÞ-Þrif is one of the largest cleaning service in Iceland, with 250 employees and serves private and public companies and building contractors. AÞ-Þrif is expanding and we are always looking for good employees to join our lively workplace.

Þjónustustjóri Sérverkefna
AÞ-Þrif leitar að öflugum og skipulögðum þjónustustjóra til að leiða daglegan rekstur sérverkefna.
Ert þú sterkur leiðtogi sem hefur gaman af því að skipuleggja, leysa áskoranir og ná árangri með fólki?
Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur metnað fyrir framúrskarandi þjónustu, skilvirkum rekstri og góðri liðsheild.
Sem þjónustustjóri sérverkefna gegnir þú lykilhlutverki í daglegum rekstri, skipulagningu verkefna og stýringu starfsfólks. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingi sem nýtur þess að vinna í kraftmiklu umhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun, skipulagning og eftirfylgni sérverkefna.
- Mannaflastýring og skipulagning verkefna
- Stýring verkefna og stuðningur við verkstjóra og starfsfólk.
- Umsjón með daglegum fundum og trygging á skilvirku upplýsingaflæði.
- Eftirfylgni með framvindu, gæðum og hagkvæmni verkefna.
- Þátttaka í tilboðsgerð, verkbeiðnum og uppgjöri verkefna.
- Ábyrgð á nýtingu mannafla, tímaskráningum og daglegum rekstrarmálum.
- Þátttaka í ráðningum, starfsmannamálum og starfsþróun í samstarfi við mannauðssvið.
- Skipulagning þjálfunar og fræðslu starfsfólks í samstarfi við mannauðssvið.
- Náið samstarf við viðskiptastjóra og aðra stjórnendur til að tryggja framúrskarandi þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnun starfsfólks og daglegum rekstri.
- Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni.
- Sterk leiðtogahæfni og geta til að hvetja og leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks.
- Sjálfstæð, ábyrg og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Góð rekstrarvitund og hæfni til að forgangsraða verkefnum.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og geta til að takast á við fjölbreyttar áskoranir.
- Frábær almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Ökuréttindi.
Menntun sem nýtist í starfi og reynsla af verkefnastjórnun, þjónusturekstri eða sambærilegu starfsumhverfi er kostur.
Advertisement published15. October 2026
Application deadline31. October 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Skeiðarás 12, 210 Garðabær
Type of work
Skills
Clean criminal recordHuman relationsAmbitionDriver's licenceIndependencePlanningCustomer service
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Engineering Manager
Fenris Creations

Reyndur pípari óskast til starfa
Aðallagnir

Fjármálastjóri
GoPro

Vinnslustjóri
Samherji hf.

Deildarstjóri stafrænnar verðmætasköpunar
Orka náttúrunnar

Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Skrifstofustjóri - Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í okkar lið!
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf.

Forstöðumaður Kópavogslaugar - afleysing
Kópavogslaug

Verkstjóri
Garðlist ehf

Bifvélavirki á ferð
BL ehf.

Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali

Nettó Hrísalundi - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó