SÁÁ
SÁÁ
SÁÁ

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá SÁÁ

Við leitum að hjúkrunarfræðingi til starfa á Sjúkrahúsinu Vogi. Um er að ræða vaktavinnu og möguleiki er á hlutastarfi.

Hjá SÁÁ starfar öflugur hópur fagfólks sem sinnir meðferð einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda. Á Sjúkrahúsinu Vogi er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta þar sem hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í meðferð, stuðningi og umönnun skjólstæðinga.

Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér náið samstarf við aðrar fagstéttir. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fagmennsku, öryggi skjólstæðinga og stöðuga þróun þjónustunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hjúkrun skjólstæðinga í afeitrun og fíknimeðferð.
  • Mat á hjúkrunarþörfum, skipulagning og framkvæmd hjúkrunarmeðferðar.
  • Lyfjaumsýsla og eftirlit með líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga.
  • Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur við skjólstæðinga.
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi og meðferðaráætlanagerð.
  • Þátttaka í faglegri þróun, gæðastarfi og umbótaverkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gilt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð.
  • Ábyrgðarkennd, frumkvæði og góð fagleg dómgreind.
  • Áhugi á fíknimeðferð og þverfaglegu samstarfi.
  • Reynsla af fíknimeðferð, geðhjúkrun eða sambærilegri heilbrigðisþjónustu er kostur en ekki skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og gefandi starf í sérhæfðri heilbrigðisþjónustu.
  • Möguleiki á hlutastarfi.
  • Öflugt þverfaglegt samstarf og gott samstarfsfólk.
  • Tækifæri til faglegrar þróunar, fræðslu og símenntunar.
  • Þátttaka í þróun og umbótum á hjúkrunarþjónustu SÁÁ.
Advertisement published28. October 2026
Application deadline11. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Optional
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Vík, Kjalarnesi
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags