
STOÐ
STOÐ er sérhæft þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði heilbrigðis og rannsókna. Fyrirtækið veitir heildstæðar lausnir sem styðja fagfólk, styrkja heilbrigðiskerfið, efla rannsóknir og bæta lífsgæði einstaklinga. Þannig erum við mikilvæg stoð einstaklinga, heilbrigðisþjónustu og rannsókna.
Stoð sameinaðist systurfélagi sínu MEDOR í mars 2026 undir nafninu STOÐ og byggir starfsemin á sterkum grunni þekkingar, reynslu og sérhæfingar. Fyrirtækið sameinar annars vegar áratugalanga reynslu í stoðtækjasmíði, ráðgjöf og lausnum sem styðja fólk í daglegum athöfnum og hins vegar djúpa sérþekkingu í sölu, ráðgjöf og þjónustu á hágæða lækningatækjum og hjúkrunar- og rannsóknarvörum.
Vöru- og þjónustuframboð STOÐAR spannar allt frá háþróuðum tækjum og rekstrarvörum fyrir heilbrigðisstofnanir til lausna fyrir einstaklinga, svo sem stoðtækja, hjálpartækja og hjúkrunarvara.
STOÐ byggir starfsemi sína á gildum um hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika og leggur áherslu á langtímasamstarf og lausnir sem skapa raunverulegt virði.

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
Viltu taka þátt í að efla heilbrigðisþjónustu með sölu og innleiðingu vandaðra lausna? STOÐ leitar að hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og krefjandi starf sem viðskiptastjóri á vaxandi heilbrigðistæknimarkaði.
Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, vill byggja upp sterk tengsl og hefur metnað fyrir árangri og að hafa áhrif. Starfið felur í sér markaðssetningu og sölu á hjúkrunarvörum ásamt uppbyggingu traustra tengsla við heilbrigðisstarfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Markaðssetning á hjúkrunarvörum og lækningatækjum til heilbrigðisstofnana
- Innleiðing á nýjum vörum auk fræðslu og eftirfylgni
- Tengslamyndun og gott samstarf við viðskiptavini
- Samskipti við erlenda birgja
- Greining vaxtartækifæra í verkefnum tengdum nýjum spítala
- Þátttaka á ráðstefnum og fundum innanlands og erlendis
- Útboðs- og tilboðsgerð
- Vörustýring og þátttaka í þróun vöruframboðs
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarfræði eða önnur heilbrigðismenntun er skilyrði
- Þekking á sölu og markaðssetningu lækningatækja er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi eða á heilbrigðisstofnunum er kostur
- Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðmót
- Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til að ná árangri í starfi
- Færni í mannlegum samskiptum
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Advertisement published23. October 2026
Application deadline5. November 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
DriveNurseHuman relationsMarketingAmbitionPlanningSales
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá SÁÁ
SÁÁ

Úthringiver
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sölufulltrúi
Húsgagnahöllin

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Viðskiptastjóri hjá Sena Events & PCO
Sena

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Rekstarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals í Skútuvogi
Húsasmiðjan