

Álftanesskóli - stuðningsfulltrúi
Álftanesskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í 100% skólaárið 2026-2027.
Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru tæplega 400 nemendur og 75 starfsmenn. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd. Í Álftanesskóla er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína – allir eru einstakir. Álftanesskóli starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga.
Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu starfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Álftanesskóla.
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og til virkrar þátttöku í skólastarfi
- Vinna eftir áætlun sem deildarstjóri stoðþjónustu, kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Leitast er við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
- Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Icelandic



















