Garðabær
Garðabær
Garðabær

Bæjarból - leikskólakennari

Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara til að sinna stuðning við barn/börn í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra. Möguleiki er á 50% til 100% starfshlutfalli.

Leikskólinn er staðsettur í fallegu grónu hverfi, hann er fjögurra deilda og þar er rými fyrir 86 börn. Bæjarból er heilsueflandileikskóli þar sem lögð er áhersla á að virða leik barna, efla lífsgleði og samskiptahæfni þeirra og huga að heilbrigði, hollustu og hreyfingu.

Einkunnarorð skólans eru : Leikur – Hreyfing – Lífsleikni.

Leitað er að jákvæðum einstakling sem sýnir frumkvæði og býr yfir hæfni í samskiptum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinna barni/börnum sem eru með/fá stuðning og eða með sérþarfir
  • Sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
  • Starfa í samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, sérkennslustjóra, aðra starfsmenn og fagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Sveigjanleiki


*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi

Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:

  • Vinnuskylda í fullu starfi er 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafrís
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30 - 16:30 mánudag til fimmtudag og 7:30- 16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf


Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Advertisement published21. July 2026
Application deadline21. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Bæjarbraut
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags