Garðabær
Garðabær
Garðabær

Bæjarból - aðstoðarleikskólastjóri afleysing

Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í afleysingu í eitt ár frá og með 1. september 2026.

Staðan er 100% en verksvið aðstoðarleikskólastjóra skiptist í 40% stjórnun og 60% vinnu með börnunum.

Leikskólinn er staðsettur í fallegu grónu hverfi, hann er fjögurra deilda og þar er rými fyrir 86 börn. Bæjarból er heilsueflandi leikskóli með áherslu á að virða leik barna, efla lífsgleði og samskiptahæfni þeirra og huga að heilbrigði, hollustu og hreyfingu.

Einkunnarorð skólans eru : Leikur – Hreyfing – Lífsleikni. Heimasíða skólans er www.baejarbol.is.

Leitað er að jákvæðum einstaklingi sem er framsýnn í skólamálum, sýnir frumkvæði og býr yfir hæfni í samskiptum.

Starf aðstoðarleikskólastjóra er frábært tækifæri fyrir áhugasama, þar gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í þróun leikskólastarfs og hafa áhrif í sterku stjórnendateymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins
  • Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Sérhæfð hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða reynsla að stjórnun æskileg
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi

Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:

  • Vinnuskylda í fullu starfi er 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafrís
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30 - 16:30 mánudag til fimmtudag og 7:30- 16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf


Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi
Advertisement published21. July 2026
Application deadline21. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Bæjarbraut
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Flexibility
Professions
Job Tags