Garðabær
Garðabær
Garðabær

Holtakot - leikskólakennari

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.

Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barna undir stjórn deildarstjóra
  • Vinna að faglegu starfi deildar
  • Tekur þátt í foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
  • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi

Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:

  • Vinnuskylda í fullu starfi er 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafrís
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30 - 16:30 mánudag til fimmtudag og 7:30- 16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári sem eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf

Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Advertisement published20. July 2026
Application deadline4. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Breiðamýri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags