

Frístundaheimilið Álftamýri - starfsmaður
Álftanesskóli auglýsir eftir starfsmanni í frístundaheimilið Álftamýri
Álftanesskóli auglýsir eftir starfsmanni í frístund. Frístundastarf fer fram frá kl. 13:00 eftir að skóla lýkur og til kl. 16:30. Um eru að ræða hlutastörf sem hentar mjög vel sem aukavinna með námi.
Í Álftanesskóla er unnið af miklum metnaði og áhersla lögð á notalegt andrúmsloft, umhyggju og góðan árangur. Í skólanum eru persónuleg samskipti milli nemenda, starfsfólks og foreldra. Samvinna er mikil og góð á milli allra þeirra sem starfa í skólasamfélaginu. Í skólanum ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.alftanesskoli.is.
Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Álftanesskóla.
- Taka þátt í skipulagningu og framkvæmd á faglegu frístundastarfi
- Stýra hópum í frístundastarfi og leiðbeina börnum í leik og starfi
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
- Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Reynsla af nemendum með sérþarfir æskileg
- Ánægja af starfi með börnum
- Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Icelandic



















