
Kópavogsskóli
Kópavogsskóli er hverfisskóli miðbæjar Kópavogs og stendur við Digranesveg 15. Í skólanum eru um 400 flottir nemendur og þeim hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Skólinn er fjölþjóðlegur en rúmlega 20% nemenda eru af erlendum uppruna.
Allt starf Kópavogsskóla mótast af uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Að auki vinna yngstu bekkir skólans með vináttuverkefni Barnaheilla og bangsann Blæ.Í skólareglunum er lögð áhersla á þann skólabrag sem leitast er við að skapa
Í Kópavogsskóla er lögð áhersla á að allir:
• komi fram af tillitssemi og kurteisi
• virði vinnu annarra
• sinni hlutverki sínu af kostgæfni
• leggi áherslu á heilbrigða lífsýn

Stuðningsfulltrúi í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli auglýsir eftir öflugum stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2026 - 2027 í
75 - 80% starfshlutfall.
Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 420 frábæra nemendur og um 85 kraftmikla starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf.
Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum.
Upplýsingar um Kópavogsskóla og skólastarfið er að finna á www.kopavogsskoli.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar við faglegt starf undir leiðsögn kennara og stjórnenda
- Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd skólastarfs
- Aðstoðar nemendur við daglegar þarfir
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk og foreldra
- Aðstoðar nemendur í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
- Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með börnum
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Almenn tölvukunnátta
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fá frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Advertisement published10. August 2026
Application deadline24. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Digranesvegur 15, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Stuðningsfulltrúi í Kóraskóla
Kóraskóli

Umsjónarmaður frístundar á Hvanneyri
Borgarbyggð

Álftanesskóli - stuðningsfulltrúi
Garðabær

Frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Stuðningsfulltrúi í Hagaskóla
Hagaskóli

Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi
Borgarbyggð

Hamraskóli - laus staða stuðningsfulltrúa
Hamraskóli

Frístundaleiðbeinendur í Vatnsendaskóla
Vatnsendaskóli

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Leikskólinn Aðalþing - (sér)kennsla
Aðalþing leikskóli

Stuðningur og leiðbeinandi í leikskólann Álfaborg
Svalbarðsstrandarhreppur

Nesskóli óskar eftir stuðningsfulltúa og frístundarleiðbeinanda
Nesskóli