Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 40 þúsund íbúa.
Nafn bæjarins er dregið af jörðinni Kópavogi sem ríkissjóður átti í byrjun síðustu aldar og leigði út ásamt annarri jörð Digranesi í nágrenni hennar. Kópavogshreppur var stofnaður í byrjun árs 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900. Hreppurinn óx hratt og voru íbúar orðnir 3.783 þegar Kópavogur hlaut kaupstaðarréttindi 11. maí árið 1955.
Í Kópavogi er mikil og fjölbreytt atvinnustarfsemi. Mest er um iðnað, þjónustu og verslun af ýmsu tagi og má geta þess að Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins.
Í bænum eru fjölbreytt tækifæri til útivistar og aðstaða til íþróttaiðkunar er með því besta sem þekkist. Þá eru Kópavogsbúar afar stoltir af menningarstofnunum sínum á Borgarholtinu, svo sem Salnum, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Tónlistarsafni Íslands og Molanum, ungmennahúsi Kópavogs.
Kennsluráðgjafi í skólaþjónustu grunnskóladeildar
Menntasvið Kópavogsbæjar óskar eftir kennaramenntuðum einstaklingi til að vinna í teymi sérfræðinga innan skólaþjónustu. Um er að ræða ráðgjafateymi sem vinnur með stjórnendum og kennurum við grunnskóla Kópavogs að velferð nemenda.
Ráðgjafar teymis veita stuðning og leiðbeiningar til kennara og starfsfólks skóla sem miðar að því að efla skólastarf á faglegan hátt til að leysa viðfangsefni sem upp koma.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veitir ráðgjöf og handleiðslu til skólastjórnenda, kennara og starfsfólks um skólastarf, inntak þess og skipulag
- Veitir handleiðslu og ráðgjöf í einstaklingsmálum og situr teymisfundi
- Veitir handleiðslu og ráðgjöf til kennara og starfsfólks vegna bekkjarstjórnunar, kennsluhátta/kennsluaðferða eða samskipta
- Vinnur með fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsnámskrár og hvetjandi námsumhverfi
- Tekur þátt í innleiðingu á Menntastefnu Kópavogsbæjar og framkvæmd stefnu um menntun fyrir alla
- Tekur þátt í innleiðingu á lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
- Fylgist með rannsóknum og miðlar nýjungum varðandi þarfir barna og skólastarf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun (M.A., M.Ed., M.S.) á sviði uppeldis- og menntunarfræða eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Haldgóð reynsla af kennslu í grunnskóla, 3 ár eða meira.
- Reynsla af handleiðslu og ráðgjöf til kennara og starfsfólks.
- Góð innsýn í lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
- Innsýn í stefnumarkandi þætti á sviði menntamála og breytingaferli.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
- Færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Auglýsing stofnuð26. apríl 2024
Umsóknarfrestur12. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)
Laus staða deildarstjóra
Leikskólinn Bjarkatún Djúpavogi
"Á meðan meðbyr blæs gríptu þá þessa gæs"
Árbæjarskóli
Leikskólakennari/Leiðbeinandi.
Leikskólinn Skerjagarður
Sérkennsla í Rofaborg - Þroskaþjálfi/Iðjuþálfi/Sérkennari...
Leikskólinn Rofaborg
Námsbrautarstjóri
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Sérkennari við Seyðisfjarðarskóla
Seyðisfjarðarskóli
Menntasvið Kópavogs leitar að leiðtoga grunnskóladeildar
Kópavogsbær
Viltu hafa áhrif á dýrmæta einstaklinga? Komdu til okkar
Leikskólinn Sjáland
Sjálandsskóli óskar eftir umsjónarkennara á miðstig
Garðabær
Brennur þú fyrir sérkennslu?
Furugrund
Sjálandsskóli óskar eftir dönskukennara á unglingastig
Garðabær
Deildarstjóri óskast
Furugrund