Leikskólinn Rofaborg
Leikskólinn Rofaborg

Sérkennsla í Rofaborg - Þroskaþjálfi/Iðjuþálfi/Sérkennari...

Þroskaþjálfi, Iðjuþjálfi, sérkennari, leikskólakennari, leikskólasérkennari eða aðili með aðra uppeldismenntun óskast til starfa í leikskólann Rofaborg. Athygli er vakin á því að ef ekki næst að ráða einstakling með menntun á sviði uppeldis og kennslu kemur til greina að ráða inn leiðbeinanda sem er tilbúin að takast á við þetta verkefni.

Um starfið

Rofaborg er rótgróinn leikskóli í hjarta Árbæjar. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að takast á við skemmtileg og krefjandi verkefni, vaxa í starfi og aðstoða litla fólkið sem hér dvelur að þroskast og dafna. Rofaborg er líflegur starfsstaður þar sem lögð er áhersla á að nýta styrkleika hvers og eins svo að allir hafi tækifæri á að hafa áhrif á stafið.

Útikennsla, hreyfing og sköpun er ríkur þáttur í starfi leikskólans hjá öllum börnum, sem og félgasfærniþjálfun, málörvun og læsi. Í starfinu með elstu börnunum hefur umhverfismennt verið í þróun undanfarin ár og nýlega var tekið í notkun nýtt útikennslusvæði.

Starfið felst í að sjá um þjállfun og kennslu barns með sérþarfir. Starfið er unnið undir handleiðslu sérkennslustjóra og í samvinnu við viðkomandi deildarstjóra og annað starfsfólk deildarinnar.

Einkunnarorð eru leikur - gleði - vinátta

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að sinna kennslu og þjálfun barns með sérþarfir.
  • Að skipuleggja og endurmeta þjálfunaráætlanir í samvinnu við sérkennslustjóra.
  • Að vera í samstarfi við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra.
  • Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi s.s. leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara, þroskaþjálfafræðimenntun, Iðjuþjálfun, sérkennaramenntun eða önnur menntun tengd uppeldi, þroska og kennslu barna.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Hæfni og sveigjanleki í samskiptum.
  • Ábyrgð og áreiðanleiki.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Frítt í sund í allar sundlaugar í Reykjavík
  • Íþróttastyrkur kr. 16.000.- eftir 6 mánuði í starfi
  • Afsláttur af leikskólagjaldi fyrir barn í leikskóla í Reykjavík
  • Samgöngusamningur kr. 6000.- ef notaður er vistvænn ferðamáti að mestu leyti
  • Frítt á söfn í Reykjavík og Borgarbókasafnið
  • Forgangur fyrir barn í leikskóla í Reykjavík
  • Frítt fæði
Auglýsing stofnuð10. maí 2024
Umsóknarfrestur31. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Skólabær 6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar