Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Menntasvið Kópavogs leitar að leiðtoga grunnskóladeildar

Menntasvið Kópavogsbæjar leitar að öflugum leiðtoga í starf deildarstjóra grunnskóladeildar. Sviðið annast rekstur grunnskóla, leikskóla, starfsemi dagforeldra, skólahljómsveitar, félagsmiðstöðva, frístundaheimila og íþróttamála og þjónustar um 7 þúsund börn og fjölskyldur þeirra.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir framsækinn einstakling sem hefur áhuga á að taka þátt í áframhaldandi sókn í málefnum grunnskóla Kópavogsbæjar og brennur fyrir farsæld barna og framsækinni menntun.

Grunnskóladeild ber ábyrgð á starfsemi 11 grunnskóla, með um 5 þúsund nemendur og 9 frístundaheimila auk þess sem málefni skólahljómsveitar heyra undir deildina. Grunnskólar Kópavogs standa mjög framarlega á sviði upplýsingatækni í skólastarfi, vel er stutt við skóla fyrir alla og faglegur metnaður og þróunarstarf til fyrirmyndar.

Deildarstjóri grunnskóladeildar er næsti yfirmaður skólastjóra og starfsfólks grunnskóladeildar. Deildarstjóri er faglegur leiðtogi í grunnskólamálum og ber ábyrgð á gæðum menntunar, þróunar og nýbreytni í grunnskólum Kópavogs.

Kópavogsbær er annað tveggja sveitarfélaga á landinu sem nýtur viðurkenningar Unicef sem barnvænt sveitarfélag og vinnur markvisst að innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og menntastefnu Kópavogsbæjar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og frumkvæði að stefnumarkandi tillögum um nýbreytni og þróun í skólastarfi
  • Dagleg stjórnun og skipulag starfsemi grunnskóladeildar
  • Ábyrgð á ráðgjöf og stuðningi við skólastjórnendur varðandi stjórnun og fagleg málefni
  • Þátttaka í gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlunar grunnskólahluta menntasviðs
  • Ábyrgð á mati og eftirliti með grunnskólastarfi og starfsemi frístundaheimila í samræmi við lög og reglugerðir og menntastefnu sveitarfélagsins
  • Ábyrgð á undirbúningi funda menntaráðs og framfylgir samþykktum þess
  • Mótun og eftirfylgni árangursríks samstarfs við samtök foreldra barna í grunnskólum
  • Stuðlar að árangursríku samstarfi við aðrar deildir og svið innan sem utan sveitarfélagsins
  • Ábyrgð á skipulagi endurmenntunar og þjálfunar sem stuðlar að þróun í skólastarfi fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla
  • Þátttakandi og ráðgefandi aðili varðandi breytingar og nýframkvæmdir á húsnæði grunnskóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla á grunnskólastigi
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegra greina sem nýtast í starfi
  • Reynsla af stjórnun og rekstri í grunnskóla
  • Reynsla og þekking á regluverki stjórnsýslunnar æskileg
  • Leiðtogahæfileikar og reynsla af faglegri forystu í skólastarfi
  • Sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í skólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði í starfi, skipulagsfærni og vönduð vinnubrögð
  • Færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Stytting vinnuvikunnar

Auglýsing stofnuð9. maí 2024
Umsóknarfrestur21. maí 2024
Tungumálakunnátta
EnskaEnskaMjög góð
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar