Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Menntasvið Kópavogs leitar að leiðtoga leikskóladeildar

Menntasvið Kópavogsbæjar leitar að öflugum leiðtoga í starf deildarstjóra leikskóladeildar. Sviðið annast rekstur grunnskóla, leikskóla, starfsemi dagforeldra, skólahljómsveitar, félagsmiðstöðva, frístundaheimila og íþróttamála og þjónustar um 7 þúsund börn og fjölskyldur þeirra.

Við leitum að framsæknum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að taka þátt í áframhaldandi sókn í málefnum leikskóla Kópavogsbæjar og brennur fyrir farsæld barna og framsæknu leikskólastarfi.

Leikskóladeild menntasviðs ber ábyrgð á starfsemi 21 leikskóla, með um 2.000 börn, ásamt starfsemi dagforeldra. Á þessu skólaári hefur verið unnið að innleiðingu "Kópavogsmódelsins" sem felur í sér grundvallarbreytingar á skipulagi leikskóla bæjarins með það að markmiði að styrkja stöðugleika í starfsumhverfi og bæta velferð og vellíðan barna og starfsfólks. Árangurinn er langt umfram væntingar og spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan leiðtoga að taka við keflinu í framþróun leikskólastarfs. Deildarstjóri leikskóladeildar er næsti yfirmaður leikskólastjóra og starfsfólks leikskóladeildar.

Deildarstjóri er leiðtogi sem veitir leikskólamálum faglega forystu og ber ábyrgð á faglegum gæðum og framþróun í námi og uppeldi í leikskólum Kópavogs. Deildarstjóri hefur leiðandi áhrif á stefnumörkun leikskólamála, innleiðingu samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna og vinnustaðamenningu í leikskólum Kópavogs.

Kópavogsbær er annað tveggja sveitarfélaga á landinu sem nýtur viðurkenningar Unicef sem barnvænt sveitarfélag og vinnur markvisst að innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og menntastefnu Kópavogsbæjar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og frumkvæði að stefnumarkandi tillögum um nýbreytni og þróun í leikskólastarfi
  • Dagleg stjórnun og skipulag starfsemi leikskóladeildar
  • Ábyrgð á innritun barna í leikskóla og úrvinnslu forgangsbeiðna
  • Ábyrgð á ráðgjöf og stuðningi við leikskólastjórnendur varðandi stjórnun og fagleg málefni
  • Þátttaka í gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlunar leikskólahluta menntasviðs
  • Ábyrgð á mati og eftirliti með leikskólastarfi í samræmi við lög og reglugerðir og menntastefnu
  • Ábyrgð á undirbúningi funda leikskólanefndar og framfylgir samþykktum þess
  • Mótun og eftirfylgni árangursríks samstarfs við samtök foreldra barna í leikskólum
  • Stuðlar að árangursríku samstarfi við aðrar deildir og svið innan sem utan sveitarfélagsins
  • Ábyrgð á skipulagi endurmenntunar og þjálfunar sem stuðlar að þróun í leikskólastarfi fyrir leikskólakennara og annað starfsfólk
  • Þátttakandi og ráðgefandi aðili varðandi breytingar og nýframkvæmdir á húsnæði leikskóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið leikskólakennari og reynsla af starfi í leikskóla
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegra greina sem nýtast í starfi
  • Reynsla af stjórnun og rekstri í leikskóla
  • Reynsla og þekking á regluverki stjórnsýslunnar æskileg
  • Leiðtogahæfileikar og reynsla af faglegri forystu í leikskólastarfi
  • Sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði í starfi, skipulagsfærni og vönduð vinnubrögð
  • Færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Stytting vinnuvikunnar

Auglýsing stofnuð9. maí 2024
Umsóknarfrestur21. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar