VSB verkfræðistofa
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði mannvirkjagerðar og framkvæmda. VSB veitir viðskiptavinum ráðgjöf með lausnum sem einkennast af hagkvæmni, fagmennsku og áreiðanleika. Á stofunni starfa um 38 manns. VSB hefur aðsetur í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Hönnuður lagna- og loftræsikerfa
VSB verkfræðistofa óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf hönnuðar lagna- og loftræsikerfa. Hönnuður lagna- og loftræsikerfa starfar á byggingasviði VSB. Um framtíðarstarf er að ræða og í boði eru spennandi verkefni í frábæru starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun lagna- og loftræsikerfa og gerð séruppdrátta auk annarra tilheyrandi verkefna við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
- Gerð útboðsgagna, kostnaðaráætlana, skýrslna
- Önnur almenn ráðgjöf og hönnun
- Ábyrgð á gerð og gæðum hönnunargagna í samræmi við gæðakerfi og stefnu VSB
- Að fylgjast með í samráði við fagstjóra, faglegri þróun í faggreininni þ.m.t. bóka-útgáfu, tímaritum, greinaskrifum, hugbúnaði o.s.frv.
- Samskipti við samstarfsaðila í hönnunarverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verk- eða tæknifræðimenntun
- Starfsreynsla úr greininni
- Iðnmenntun í tengdri starfsgrein er kostur (s.s. pípulögnum)
- Sköpunargleði og lausnamiðuð hugsun
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Góð kunnátta á Revit
- Brennandi áhugi að þróa verklag við hönnun
Auglýsing stofnuð19. apríl 2024
Umsóknarfrestur6. maí 2024
Staðsetning
Bæjarhraun 20, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
AutoCadRevit
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Verkefnastjórn og framkvæmdaeftirlit
Dynja ehf.
Framleiðslusérfræðingur í tækniteymi kerskála
Alcoa Fjarðaál
Svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins
SSH
Verkefnastjóri í áhættustýringu
Íslandsbanki
Sérfræðingur - þjónustudeild á Suðursvæði.
Vegagerðin
Greinandi á sviði sjálfbærnimála
Reitun ehf
Verkefnastjóri viðhalds og nýbygginga
K16 ehf
Sérfræðingur í fjármálum, greiningum og áætlanagerð
Fjármála og efnahagsráðuneytið
Sérfræðingur í byggingarframkvæmdum og brunavörnum
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Senior Biotechnologist
Alvotech hf
Fill & Finish Technologist
Alvotech hf
Hugbúnaðarsérfræðingur
Kvika banki hf.