Garðabær
Garðabær
Garðabær

Álftanesskóli óskar eftir tónmenntakennara

Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru rúmlega 350 nemendur og 75 starfsmenn. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd. Í Álftanesskóla er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína - allir eru einstakir. Álftanesskóli starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í tónmennt á öllum aldursstigum
  • Vinna að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
  • Stuðla að velferð nemenda og samstarfi við fagfólk skólans og forráðamenn
  • Þátttaka í teymisvinnu 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Sérhæfing eða reynsla á sviði tónmenntakennslu í grunnskóla
  • Lipurð, þolinmæði og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum 
Auglýsing stofnuð25. mars 2024
Umsóknarfrestur22. apríl 2024
Staðsetning
Breiðumýri 225
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar