Viltu koma að kenna í Kópavogsskóla?
Kópavogsskóli auglýsir eftir öflugum umsjónarkennurum fyrir yngsta- og miðstig.
Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 400 frábæra nemendur og um 75 kraftmikla starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf.
Í Kópavogsskóla eru allir kennarar og nemendur í 1. – 10. bekk með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.
Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum.
Upplýsingar um Kópavogsskóla og skólastarfið er að finna á www.kopavogsskoli.is.
-
Umsjónarkennsla á yngsta- eða miðstigi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
- Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki
- Vinnur í teymi með öðrum kennurum
-
Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
-
Hæfni í mannlegum samskiptum
-
Stundvísi og áreiðanleiki
-
Mjög góð færni í íslensku
-
Æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á Uppeldi til ábyrgðar
-
Góð þekking á upplýsingatækni mikilvæg
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins