Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Vinnustaðurinn
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Um vinnustaðinn
Við skólann eru tvær starfsstöðvar þar sem nemendur yngra stigs eru á Stokkseyri og nemendur eldra stigs á Eyrarbakka. Við skólann eru 125 nemendur, 76 á yngra stigi og 49 á eldra stigi. Sérstaða skólans felst í einstaklingsmiðaðri kennslu og skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu. Mikil áhersla er lögð á góð samskipti og góða samvinnu við nærumhverfið. BES er í þróunarvinnu sem miðar að því að verða teymiskennsluskóli þar sem kennarar vinna í teymum með samkennslu tveggja til þriggja árganga. BES er Erasmus+ skóli, starfar eftir gildum Olweusar reglunnar og er heilsueflandi grunnskóli. Þá er BES virkur þátttakandi í Lærdómssamfélagi Árborgar og í öflugu samstarfi við aðra grunnskóla í Árborg.
Háeyrarvellir 56, 820 Eyrarbakki