Ísfélag hf.
Ísfélag hf.
Ísfélag hf.

Vinnslu- og gæðastjóri

Viltu taka þátt í uppbyggingu á nýrri afurð úr hliðarafurðum laxeldis?

Ísfélag hf. leitar að vinnslu- og gæðastjóra í áburðarvinnslu félagsins í Þorlákshöfn. Vinnslan framleiðir lífrænan fljótandi áburð úr laxaslógi undir vörumerkinu Organic Bloom, samkvæmt framleiðsluleyfi MAST skv. ABP-reglugerð EU.

Starfið sameinar daglega stjórn vinnslunnar og ábyrgð á vöru- og ferlaþróun.

Spennandi verkefni og tækifæri til að móta og þróa nýja vöru

Organic Bloom er náttúruleg plöntunæring, framleidd með lághita ensímvinnslu sem varðveitir verðmæta eiginleika hráefnisins. Verkefnið styður við hringrásarhagkerfið með því að nýta hliðarafurðir laxeldis sem verðmæta næringu fyrir plöntur og jarðveg. Hér er spennandi tækifæri fyrir réttan aðila til að taka þátt í vöruþróun og verðmætasköpun.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Dagleg stjórn framleiðslu: keyrslur, hráefnismóttaka, mönnun og búnaður

• Þróun framleiðsluferla

• Þátttaka í vöruþróun með hliðsjón af gildandi reglum og gæðakröfum

• Umsjón með HACCP gæðakerfi, samskipti við MAST og vottunaraðila

• Sýnatökur, mælingar og úrvinnsla niðurstaðna

• Samstarf við rannsóknaraðila, birgja og tækjaframleiðendur

Menntunar- og hæfniskröfur

• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í matvælafræði, efnaverkfræði, líftækni, efnafræði eða verkfræði — eða sambærileg reynsla

• Reynsla af matvæla-, líftækni- eða fiskvinnslu; þekking á skiljunarferlum (mjöl- og lýsisvinnsla) eða ensímniðurbroti (prótínvatnsrof) er kostur

• Þekking á gæðakerfum og opinberu eftirliti

• Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og góð tök á gagnaúrvinnslu

• Gott vald á íslensku og ensku

Auglýsing birt28. október 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Óseyrarbraut 20, 815 Þorlákshöfn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar