

Viltu vinna að því að fólk stjórni eigin lífi? - Ráðgjafi óskast
NPA miðstöðin leitar að ráðgjafa í fjölbreytt og spennandi starf. Í boði er fullt starf frá áramótum.
Hefur þú áhuga á mannréttindum, gaman af því að vinna með fólki og hæfileika til að finna lausnir? Þá gætum við verið að leita að þér!
NPA miðstöðin er samvinnufélag í eigu og undir stjórn fatlaðs fólks sem nýtir sér notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Við vinnum að því að fatlað fólk geti lifað sjálfstæðu lífi og haft stjórn á eigin aðstoð.
Um starfið
Starf ráðgjafa hjá NPA miðstöðinni er einstaklega fjölbreytt og fást ráðgjafar við margvísleg verkefni. Ráðgjafar vinna náið með fötluðu fólki, aðstoðarfólki, sveitarfélögum og öðrum samstarfsaðilum.
Verkefnin eru meðal annars:
-
Ráðgjöf og stuðningur við fatlað fólk sem stýrir eigin persónulegri aðstoð.
-
Aðstoð við ráðningar, vaktaskipulag, kjarasamninga og starfsmannamál.
-
Samskipti við sveitarfélög og vinna að réttinda- og hagsmunamálum.
-
Ráðgjöf til fatlaðs fólks varðandi fjárhag NPA samninga.
-
Úrlausn fjölbreyttra áskorana, fræðsla og þátttaka í þróunarverkefnum.
Hverjum leitum við að?
Einkum verður horft til umsækjenda sem hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi. Reynsla sem nýtist í starfinu er kostur, en ekki síður skiptir máli að hafa áhuga á mannréttindum og skilning á sjálfsákvörðunarrétti fatlaðs fólks.
Við leitum að einstaklingi sem hefur góða samskiptahæfni, er lausnamiðaður, skipulagður og á auðvelt með að vinna með ólíku fólki.
Við leggjum áherslu á sjálfstæði í vinnubrögðum, teymisvinnu, frumkvæði, góða íslenskukunnáttu og vilja til að læra nýja hluti.
Þekking á NPA er kostur en ekki skilyrði. Mikilvægast er að skilja að hlutverk ráðgjafa er að styðja fólk við að taka eigin ákvarðanir, ekki taka ákvarðanir fyrir það.
Hvað bjóðum við upp á?
-
Fjölbreytt og sjálfstætt starf innan ráðgjafateymis.
-
Fjölskylduvænn vinnustaður, sveigjanleiki í starfi og gott starfsumhverfi.
-
Tækifæri til að læra nýja hluti og hafa áhrif á eigin verkefni.
-
Skemmtilegt samstarfsfólk og góða liðsheild.
-
Tækifæri til að vinna að mannréttindum og sjálfstæðu lífi fatlaðs fólks.
-
Niðurgreiddar máltíðir.
Starfið er laust frá áramótum 2026–2027. Ráðið verður fyrst um sinn í 12 mánuði með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Við hvetjum fólk með fjölbreyttan bakgrunn til að sækja um. Fatlað fólk er sérstaklega hvatt til að sækja um starfið. Umsókn um starfið þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Umsóknarfrestur er til 15. desember.
Nánari upplýsingar á www.npa.is og frekari upplýsingar veita Ástrós Anna Klemensdóttir og Petra Þórðardóttir, ráðgjafar, í síma 567 8270 eða í gegnum [email protected] eða [email protected].
Íslenska




