
Vinnueftirlitið
Hjá Vinnueftirlitinu starfar metnaðarfullur og samheldinn hópur sem leggur áherslu á að ná fram því markmiði að öll komi heil heim úr vinnu.
Við leitumst við að vera fyrirmyndarvinnustaður á sviði vinnuverndar og viljum að fagþekking starfsfólks sé eftirsótt til ráðgjafar í íslensku atvinnulífi. Við störfum saman í fagteymum og höfum skilvirka og vandaða stjórnsýslu að leiðarljósi.
Vinnueftirlitið býður fjölskylduvænt starfsumhverfi, samkeppnishæf starfskjör og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu og vinna á skemmtilegum vinnustað
Við leitum að einstaklingi með lausnarmiðað hugarfar sem hefur gaman af samskiptum við fólk, sýnir fagmennsku í starfi og vill hafa jákvæð áhrif á öryggi og vellíðan fólks á vinnustöðum landsins.
Við bjóðum upp á vinnustað sem leggur ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu, góð samskipti og jákvætt starfsumhverfi. Saman stuðlum við að bættri vellíðan og öryggi bæði hjá okkur og á vinnustöðum um allt land.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík. Starfssvæðið er að mestu á því landsvæði sem starfstöðin er, en einnig geta komið til verkefni á öðrum landsvæðum. Starfið er fjölbreytt og hentar þeim sem kunna vel við að vera á ferðinni og í beinum samskiptum við fólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og framkvæmd vettvangsathugana og stafrænna samskipta, auk eftirfylgni með fyrirmælum og skýrslugerðar.
- Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu.
- Taka þátt í fræðslu og miðlun þekkingar innan sem utan stofnunarinnar.
- Þátttaka í teymisvinnu.
- Þátttaka í umbótastarfi.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
Skilyrt
- Iðn-, tækni- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Gilt ökuskírteini er skilyrði.
- Hreint sakavottorð skilyrði.
Reynsla
- Reynsla af vinnuverndar-, gæða- eða öryggismálum er kostur.
- Reynsla af ráðgjöf, fræðslu eða þjónustu við viðskiptavini er kostur.
- Reynsla af stjórnsýslu eða opinberri þjónustu er kostur.
- Reynsla af skýrslugerð og eða framsetningu gagna er kostur.
- Reynsla af umbótastarfi er kostur.
Hæfni
- Sýnir fram á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Sýnir fram á nákvæmni og ábyrgð.
- Sýnir fram á góða dómgreind.
- Sýnir fram á góða samskiptahæfni.
- Sýnir fram á getu til að beita jákvæðri og lausnarmiðaðri nálgun.
- Sýnir fram á hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSamviskusemiSkipulagÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)



