

Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Við leitum að einstaklingi sem kann vel til verka og hefur viðeigandi menntun og þekkingu þegar kemur að vinnuvélum og tækjum. Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks.
Starfið felst í skoðunum á vinnuvélum og tækjum, mati á öryggi þeirra og ástandi, leiðbeiningum til atvinnurekenda og eftirfylgni með úrbótum. Viðkomandi vinnur bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi sérfræðinga sem stuðlar að öruggari vinnustöðum um land allt.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík eða á Akureyri. Starfssvæðið er að mestu á því landsvæði sem starfstöðin er, en einnig geta komið til verkefni á öðrum landsvæðum. Starfið er fjölbreytt og hentar þeim sem kunna vel við að vera á ferðinni og í beinum samskiptum við fólk.
- Skipulagning og framkvæmd skoðana á skoðunarskyldum vinnuvélum og tækjum, svo sem lyfturum, vinnulyftum, jarðvinnuvélum, krönum og húsalyftum og fl.
- Mat á ástandi og öryggi vinnuvéla og tækja.
- Skýrslugerð, skráning niðurstaðna og eftirfylgni með fyrirmælum.
- Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um örugga notkun vinnuvéla og tækja.
- Þátttaka í þróun og umbótum á skoðunum og eftirliti.
- Framkvæmd verklegra og skriflegra prófa vegna vinnuvélaréttinda.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Skilyrt
- Iðn- eða háskólamenntun, svo sem á sviði vélvirkjunar, bifvélavirkjunar, rafiðna, vélfræði eða annara greina sem nýtist í starfi skilyrði.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
- Gilt ökuskírteini er skilyrði.
- Hreint sakavottorð er skilyrði.
Reynsla
- Reynsla af vinnu á vinnuvélum og tækjum er kostur.
- Reynsla af viðhaldi, viðgerðum eða rekstri vinnuvéla er kostur.
- Þekking sem nýtist við skoðanir, greiningu og mat á tækjabúnaði er kostur.
- Góð kunnátta í ensku er kostur.
- Reynsla af vinnuverndar- og öryggismálum er kostur.
Hæfni
- Sýnir fram á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Sýnir fram á nákvæmni og ábyrgð.
- Sýnir fram á góða dómgreind.
- Sýnir fram á góða samskiptahæfni.
- Sýnir fram á getu til að beita lausnarmiðaðri nálgun.
- Sýnir fram á hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Íslenska
Enska










