Avians
Avians
Avians

Vilt þú vera hluti af tækniteymi sem heldur íslenska flugstjórnarsvæðinu gangandi?

Viltu vinna með hátæknibúnað, leysa tæknilegar áskoranir og fara stundum á staði sem fáir komast á?

Avians leitar að rafeindavirkja eða rafvirkja í spennandi og fjölbreytt starf þar sem engir tveir dagar eru eins. Einn daginn getur þú verið að sinna viðhaldi á búnaði í tæknirými og næsta dag að vinna á fjallstoppi eða í mastri með stórbrotnu útsýni.

Hluti starfsins fer fram utan höfuðborgarsvæðisins þar sem tæknibúnaðurinn sem unnið er með er staðsettur víðsvegar um landi. Það þýðir að þú þarft að vera tilbúin(n) að ferðast reglulega í verkefni og dvelja nokkra daga í senn á vettvangi. Fyrir rétta manneskju er þetta einstakt tækifæri til að sameina tæknilega sérþekkingu við fjölbreytt verkefni og vinnu við ólíkar aðstæður.

Helstu verkefni og ábyrgð

Rekstur og viðhald á 

  • Fjarskiptabúnaði 
  • Net- og símkerfum     
  • Veðurkerfum 
  • Flugleiðsögubúnaði
  • Radartengdum kögunarbúnaði      
  • Myndavélakerfum og öðrum sérhæfðum búnaði
  • Verkefni inni og úti – allt frá tölvubúnaði til loftnetavinnu
  • Dagvinna með bakvaktakerfi
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Grunnþekking á net- og fjarskiptakerfum
  • Reynsla af rekstri fjarskiptabúnaðar
  • Góð tölvukunnátta
  • Áhugi á tæknimálum og fljót/ur að tileinka sér nýjungar
  • Skipulagshæfni
  • Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi
  • Hæfni til að vinna í hæð
  • Góð kunnátta á íslensku og ensku
  • Þekking á Linux – kostur en ekki skilyrði
  • Við leitum eftir einstakling sem er vanur/vön fjallaferðum að vetrarlagi – kostur en ekki skilyrði

Starfsstöð er á Steinhellu í Hafnarfirði

Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigmar Torfi Ásgrímsson í gegnum netfangið [email protected]

Auglýsing birt15. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Steinhella 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar