
Viðskiptaþróun - Uppboð.com
Drífandi liðsmaður óskast til að reka stærsta rafræna uppboðshús landsins
Þetta er tækifæri til að taka eignarhald á vexti fyrirtækisins og byggja upp framboð, viðskiptasambönd og tekjur.
Viðkomandi ber fyrst og fremst ábyrgð á að fá inn nýja seljendur — fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga — með lager, tæki, búnað eða aðrar eignir sem henta á uppboð. Samhliða því er markaðssetning og framsetning varanna stór hluti starfsins, enda skiptir hún sköpum fyrir árangur.
Daglegur rekstur uppboðsvefjarins uppbod.com – Öflun nýrra seljenda og uppbygging viðskiptasambanda – Þjónusta við kaupendur og seljendur – Umsjón með uppboðum frá skráningu til uppgjörs
Hæfniskröfur: – Drífandi og árangursdrifinn einstaklingur – Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum – Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð – Reynsla af sölu, viðskiptaþróun eða þjónustu er kostur
Spennandi starf í ört vaxandi fyrirtæki – Fjölbreytt verkefni og snertifletir við ólíka viðskiptavini – Góð tækifæri til að auka eigin tekjur með góðum árangri í starfi
Íslenska
Enska










