
Icepharma
Icepharma er í fararbroddi á íslenskum lyfja-, heilbrigðis- og neytendamarkaði. Kjarninn í starfsemi okkar er að auka lífsgæði með öflugu framboði af heilsueflandi vörum. Hjá fyrirtækinu starfa um 110 manns við sölu og markaðssetningu, sérfræðiráðgjöf og þjónustu.
Icepharma er heilsumiðaður vinnustaður sem stuðlar að góðri líkamlegri, félagslegri og andlegri heilsu starfsmanna.
Við leggjum áherslu á metnað, frumkvæði, gleði og svigrúm starfsfólks til að vaxa og þróast í starfi.
Icepharma er hluti af fyrirtækjasamstæðunni Ósar - lífæð heilbrigðis hf. þar sem samtals starfa um 220 manns. www.osar.is

Viðskiptastjóri - Tannsmiður
Icepharma leitar að metnaðarfullum tannsmið í spennandi starf á sviði tannheilsu
Helstu verkefni og ábyrgð
- CAD þjónusta – almenn hönnun á tanngervum og lækningatækjum
- CAM þjónusta – framleiðsla á tanngervum og lækningatækjum
- Markaðssetning og sala á vörum, tækjabúnaði og lausnum fyrir tannheilsumarkaðinn með kynningum, fræðslu og eftirfylgni
- Myndun tengsla og heimsóknir til viðskiptavina
- Þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini
- Samskipti við erlenda birgja
- Fundir, viðburðir og ráðstefnur innanlands og erlendis
- Hugmyndavinna og þátttaka í greiningu tækifæra til vaxtar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tannsmíðamenntun
- Reynsla af sölu- og markaðsstarfi er mikill kostur
- Mikill drifkraftur og frumkvæði
- Jákvæðni og framúrskarandi færni í tengslamyndun og samskiptum
- Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
- Gott vald á íslensku og ensku
Vinnustaðurinn
- Mötuneyti í hæsta gæðaflokki
- Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
- Áhersla er lögð á fræðslu starfsmanna
- Skýr starfsmannastefna um jákvæð samskipti og vinnustaðamenningu
- Fjölbreytt úrval af vítamínum og steinefnum á vinnustaðnum
- Líkamsræktarstyrkir
- Öflugt starfsmannafélag og sjálfsprottnir starfsmannahópar fyrir ýmis áhugamál
- Styrkir úr heilsusjóði Ósa sem hvetur til heilsueflingar starfsmannahópa
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 13/Krókh 14 13R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Tannsmíði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar





