
Sjóvá
Sjóvá leitast við að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér metnaðarfullt og hæft starfsfólk og skapar starfsmönnum tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Hjá okkur starfa um 200 manns, þar af um 170 í höfuðstöðvum okkar í Kringlunni 5 en Sjóvá er með útibú víðsvegar um landið. Meðalstarfsaldur er 10 ár og margir búa að langri og víðtækri starfsreynslu meðan aðrir eru að hefja sinn starfsferil með okkur.
Fyrirtækjamenning okkar einkennist af mikilli þjónustulund, fagmennsku og samheldni, í bland við keppnisskap og vináttu. Við leggjum áherslu á góð samskipti við viðskiptavini og hvert annað og höfum vegvísana okkar Við sýnum umhyggju, við byggjum á þekkingu, við erum kvik og við einföldum hlutina sem okkar leiðarljós í öllum samskiptum.

Viðskiptastjóri í fyrirtækjaráðgjöf
Við leitum að metnaðarfullum og krafmiklum einstaklingi í starf viðskiptastjóra í fyrirtækjaráðgjöf. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf í samhentu teymi sem kappkostar að veita viðskiptavinum afburðaþjónustu, jafnt við ráðgjöf um tryggingavernd og forvarnir sem og þjónustu vegna tjóna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- fagleg ráðgjöf og öflun nýrra viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði
- ræktun viðskiptatengsla við núverandi og nýja viðskiptavini
- greining á þörfum fjölbreyttra fyrirtækja
- úrvinnsla gagna, skýrslugerð og kynning á niðurstöðum
- þátttaka í þróunarverkefnum í samstarfi við aðrar deildir
Menntunar- og hæfniskröfur
- háskólamenntun sem nýtist í starfi
- mikil samskiptafærni, jákvætt hugarfar og frumkvæði
- framúrskarandi þjónustulund og metnaður til að ná árangri
- færni í að greina töluleg gögn og setja þau fram með skýrum hætti
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kringlan 5, 103 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)



