
Blue Lagoon Skin Science
Blue Lagoon Skin Science ehf., starfar á alþjóðlegum snyrtivörumarkaði og annast
þróun, framleiðslu, markaðssetningu og sölu húðvara undir vörumerkinu Blue Lagoon Skin Science. Húðvörurnar komu fyrst á markað árið 1995, hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga og eru B Corp vottaðar. Starfsemi fyrirtækisins felur í sér rekstur fjögurra sérverslana auk heildsölu á Íslandi, og rekstur dótturfélaga í Bandaríkjunum, Bretlandi og Hollandi.

Viðskiptastjóri - Key Account Manager
Blue Lagoon Skin Science leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf Viðskiptastjóra (Key Account Manager). Viðskiptastjóri mun koma að uppbyggingu og þróun viðskiptasambanda á Íslandi með það að markmiði að efla vörumerkið, tryggja vöxt og hámarka árangur hjá viðskiptavinum. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem lögð er áhersla á góð samskipti, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Helstu verkefni:
- Greina og þróa ný sölutækifæri
- Byggja upp og efla tengsl við nýja og núverandi viðskiptavini
- Hafa frumkvæði að og framfylgja söludrifnum aðgerðaráætlunum
- Ber ábyrgð á uppsetningu og eftirfylgni á útsölustöðum ásamt því að tryggja góða þjónustu og upplýsingagjöf til viðskiptavina
- Ábyrgð á gerð þjálfunarefnis og þjálfun
- Skipuleggja og taka þátt í vörukynningum, viðburðum og ráðstefnum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Brennandi áhugi á húðvörum
- Frumkvæði, drifkraftur og framúrskarandi samskiptahæfni
- Lausnamiðaður, faglegur og með sterka þjónustulund
- Jákvæðni og áreiðanleiki í starfi
- Menntun sem nýtist í starfi, snyrtifræðimenntun er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 12.apríl
Blue Lagoon Skin Science er lifandi, skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Með framúrskarandi samvinnu allra starfsmanna er markmiðið að skapa einstaka upplifun fyrir gesti.
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Norðurljósavegur 9, 240 Grindavík
Urriðaholtsstræti 2-4, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaVörumerkjastjórnunVörustjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar






