
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Viðskiptastjóri fyrirtækja á Akureyri
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með ríka þjónustulund í starf viðskiptastjóra fyrirtækja í útibú Landsbankans á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg samskipti og þjónusta við fyrirtæki í viðskiptum
- Öflun nýrra viðskiptasambanda og ráðgjöf til viðskiptavina
- Öflun og greining á ársreikningum og áhættumati fyrirtækja í viðskiptum
- Mat á greiðslugetu fyrirtækja og rekstraraðila
- Mat og eftirlit á tryggingum og veðandlögum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðskiptafræði eða sambærilegt háskólanám sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri og/eða útlánamálum fyrirtækja
- Jákvætt viðmót, framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og hæfni til að vinna í hópi
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur14. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hofsbót 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
ÁrsreikningarViðskiptasamböndÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar







