Linde Gas ehf
Linde Gas ehf
Linde Gas ehf

viðhald og eftirlit verksmiðja.

Linde Gas óskar eftir að ráða tæknimann fyrir súrefnisverksmiðju okkar í Vogum Vatnsleysuströnd og kolsýruframleiðsluverksmiðju að Hæðarenda í Grímsnesi.

Þú verður mikilvægur hluti af 4 manna rekstrarteymi og verður undir verksmiðjustjóra sem hefur aðsetur í súrefnisverksmiðjunni í Vogum. Báðar verksmiðjurnar keyra allan sólarhringinn og eftir starfsþjálfun munt þú taka þátt í bakvaktar kerfi líkt og aðrir í teyminu.

Um er að ræða spennandi og krefjandi starf með fjölbreyttum áskorunum. Framleiðslan er fyrir iðnað, matvælaframleiðslu, laxeldi, sjúkrahús og heilsugæslu þar sem mikilla gæða er krafist.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Þú munt taka þátt í fyrirbyggjandi viðhaldi í Vogum og Hæðarenda.

·       Þú munt taka þátt í að efnagreina framleiðsluna, og kvörðum á mælitækjum.

·       Þú munt ræsa og stöðva framleiðsluna allt eftir hvor um er að ræða viðhald eða bilanir.

·       Þú munt stjórna framleiðslunni bæði í Vogum og Hæðarenda.

·       Þú munt standa fyrir bilanagreiningu á framleiðsluferlinu og eftir þörfum tilkalla viðgerðar fólk.

·       Þú munt greina og betrumbæta framleiðsluferlið þannig að það uppfylli allar öryggiskröfur, umhverfiskröfur og framlegð.

·       Þú munt stofna viðgerðarbeiðnir í viðhaldskerfi okkar, SAP, og einnig sjá til þess að þær séu skráðar rétt inn í kerfið.

·       Þú munt setja þig inní stýrikerfi verksmiðjanna.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Þú ert vélstjóri eða véfræðingur, vélvirki, rafvirki eða önnur sambærileg menntun.

·       Þú hefur reynslu af framleiðsluferli, elskar að leysa tæknileg vandamál og setur ekki fyrir þig að verða með skítuga fingur.

·       Þú er með ökuskírteini og hreint sakavottorð.

·       Þú hefur gott vald á íslensku og ensku. Önnur tungumál eru plús.

·       Á tölvusviðinu hefur þú góð tök á Office pakkanum, reynsla af SAP eða öðrum viðhaldskerfum er stór plús.

Fríðindi í starfi

Starf í alþjóðlegu fyrirtæki sem býður uppá góða starfsþjálfun, góð starfsskilyrði með mikla áherslu á öryggi og vellíðan starfsmanna. Sjálfstæði í starfi og þú berð ábyrgð á þínum verkefnum.

Launakerfið býður uppá bónus.

Auglýsing birt24. ágúst 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Heiðarholt 5, 190 Vogar
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar