
Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum / Control SME
Viltu vera í lykilhlutverki í að þróa og efla eftirlits- og stýrikerfi hjá atNorth á Fitjum?
Við leitum að öflugum sérfræðingi sem hefur mikinn áhuga á skipulagningu og stýringu verkefna, nær að vinna vel með ólíkum hópum og fá fólk með sér, en setur jafnframt skýrar kröfur um gæði og framkvæmd.
Í þessu hlutverki verður þú lykilaðili í að tryggja áreiðanlegan rekstur og stöðuga þróun stjórn- og eftirlitskerfa gagnaversins, með ábyrgð á uppsetningu, viðhaldi og hagræðingu tæknilausna sem styðja við öruggan og samfelldan rekstur innviða.
Um starfið
Í kröfuhörðu umhverfi gagnavera, þar sem kröfur um rekstraröryggi, stöðugleika og áreiðanleika eru í fyrirrúmi, gegnir sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum mikilvægu hlutverki. Starfið felur í sér umsjón með stjórn-, eftirlits- og mælikerfum starfseminnar, þar á meðal PLC-, SCADA- og BMS-kerfum, auk þess að tryggja öruggan og samfelldan rekstur þeirra.
Sérfræðingurinn ber ábyrgð á uppsetningu, viðhaldi, bilanagreiningu og þróun kerfanna, ásamt því að leiða tæknilegar umbætur og styðja við rekstur og viðskiptavini með faglegri þjónustu og lausnamiðaðri nálgun.
Lögð er áhersla á að öryggi og gæði séu órjúfanlegur hluti af daglegri framkvæmd, með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.
Hefur þú áhuga?
Ef þú hefur áhuga á tækni, stjórn- og eftirlitskerfum og vilt taka þátt í að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur gagnavera, þá viljum við heyra frá þér.
- Uppsetning, eftirlit og viðhald á tæknibúnaði
- Umsjón og eftirlit með dreifikerfum raforku
- Vinna að endurbótum og uppfærslu verkferla með teyminu
- Aðstoða viðskiptavini við úrslausn beiðna
- Eign og viðhald á stjórn- og skjákerfum.
- Skipuleggja og framkvæma fyrirbyggjandi og leiðréttandi viðhald.
- Sjá til þess að stýrikerfi séu áreiðanleg og tiltæk.
- Viðhald PLC stýringa og annarra stjórntækja.
- Meta og framkvæma firmware uppfærslur þegar þær eru samþykktar.
- Kvörðun og sannprófun mælitækja
- Iðnmenntun eða tækninám í rafiðn, tækni, eða verkfræði.
- Sveinspróf eða reynsla af tengivinnu.
- Reynsla af Schneider PME, EBO og Janitza Gridvis er kostur
- Þekking á PLC og SCADA/BMS kerfum
- Góður skilningur á netkerfum
- Þekking á samskiptastöðlum eins og Modbus serial, Modbus TCP/IP, Profibus og Profinet
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi
- Sjálfstæð skipulögð vinnubrögð og frumkvæði
- Umbótahugarfar, örygggisvitund og þjónustulund
- Góð kunnátta í ensku, bæði skrifleg og töluð
- Bílpróf
- Hreint sakavottorð
- Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Enska










