Orkuvirki
Orkuvirki
Orkuvirki

Flokkstjóri sem leiðir fólk og tekur þátt í verkinu

Kanntu að halda utan um verkefnin, gefa skýr fyrirmæli og fá fólk til að vinna vel saman?

Orkuvirki leitar að reynslumiklum flokkstjóra í fullt starf. Við leitum að fagmanni sem hefur yfirsýn yfir daglega framkvæmd, leiðbeinir samstarfsfólki og tekur sjálf þátt í verkinu.

Þetta er starf fyrir þig sem sameinar verkþekkingu og leiðtogahæfni og leggur jafna áherslu á framvindu, gæði og öryggi.

Þú skipuleggur daglega vinnu vinnuflokks, úthlutar verkefnum og fylgir framkvæmd þeirra eftir. Þú tryggir að fólkið hafi skýrar upplýsingar og nauðsynlegt efni og búnað og heldur stjórnendum upplýstum um stöðu verka.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og stýra daglegri vinnu samkvæmt verkáætlun
  • Undirbúa daginn og taka þátt í verkefnum flokksins
  • Leiðbeina starfsfólki og styðja við þjálfun þess
  • Fylgja eftir teikningum, verklýsingum og kröfum um gæði 
  • Stuðla að öruggu vinnuumhverfi og bregðast við áhættu
  • Vinna við framleiðslu, uppsetningu og þjónustu
  • Vinna við háspennu, millispennu og lágspennu
  • Bilanagreining og viðgerðir
  • Tryggja fagleg vinnubrögð og vandaðan frágang
  • Gæta öryggis og réttrar meðferðar efnis, verkfæra og búnaðar
  • Deila þekkingu og stuðla að góðu samstarfi innan teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun, meistararéttindi eru kostur
  • Að lágmarki þriggja ára starfsreynsla sem rafvirki
  • Reynsla af flokkstjórn eða sambærilegu starfi
  • Færni í að lesa teikningar, verklýsingar og tæknigögn
  • Fagleg dómgreind, yfirvegun og skýr samskipti
  • Gild ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Frábær starfsandi og öflugt teymi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Tækifæri til að vaxa í starfi
  • Verkfæri og viðeigandi fatnaður
  • Niðurgreiddur hádegisverður
  • Íþróttastyrkur
Auglýsing birt16. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tunguháls 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Sveinspróf
Starfsgreinar
Starfsmerkingar