

Vilt þú taka þátt í að tryggja flugöryggi?
Avians leitar að öflugum rafeindavirkja, eða rafvirkja, sem vill taka þátt í að byggja upp, reka og viðhalda tæknibúnað sem tryggir örugga þjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu.
Hvað felst í starfinu?
Í starfinu felst tækifæri til að vinna með fjölbreyttan og krefjandi búnað, bæði innan og utandyra og jafnvel uppi í möstrum með útsýni sem fáir fá að upplifa.
Starfið krefst þess að þú sért tilbúin(n) að bregðast hratt við, ferðast út á land og leysa úr tæknilegum áskorunum sem hafa bein áhrif á öryggi og þjónustu íslenska flugstjórnarsvæðisins.
Starfsstöð er á Steinhellu í Hafnarfirði
__________________________________________________________________________________________________
Afhverju Avians?
Hjá okkur færðu að:
🌍 Taka þátt í að tryggja öryggi allra þeirra sem ferðast um íslenska flugstjórnarsvæðið
🚁 Upplifa fjölbreytt verkefni á ólíkum stöðum víðs vegar um landið
⚡ Vinna með tæknibúnað og spennandi kerfi sem ekki er að finna annars staðar.
👥 Verða hluti af sterku teymi í góðri starfsaðstöðu þar sem samvinna og jákvæð menning eru í fyrirrúmi.
Rekstur og viðhald á fjarskiptabúnaði, svo sem:
- Rekstur og viðhald á fjarskiptabúnaði, net- og símkerfum, veðurkerfum, flugleiðsögubúnaði, radartengdum kögunarbúnaði, myndavélakerfum og öðrum sérhæfðum búnaði
- Verkefni inni og úti – allt frá tölvubúnaði til loftenetavinnu
Starfið felur í sér verkefni inni og úti - allt frá tölvubúnaði til mastra.
Um er að ræða davinnu með bakvaktakerfi.
Við leitum að einstakling sem hefur:
- Grunnþekking á net- og fjarskiptakerfum
- Reynsla af rekstri fjarskiptabúnaðar
- Góð tölvukunnátta
- Áhugi á tæknimálum og fljót/ur að tileinka sér nýjungar
- Skipulagshæfni
- Hæfni til að starfa sjálfstætt og í góðri liðsheild
- Hæfni til að vinna í hæð
- Góð kunnátta á íslensku og ensku
- Þekking á Linux – kostur en ekki skilyrði
- Við leitum eftir einstakling sem er vanur/vön fjallaferðum að vetrarlagi – kostur en ekki skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigmar Torfi Ásgrímsson í gegnum netfangið [email protected]
Íslenska
Enska










