Góa-Linda sælgætisgerð
Góa-Linda sælgætisgerð
Góa-Linda sælgætisgerð

Verkstjóri í Framleiðslu og Pökkun

Ertu góður í að halda utan um fólk, vélar og framleiðslu – og láta hlutina ganga?

Góa-Linda leitar að öflugum verkstjóra í framleiðslu og pökkun. Við leitum að einstaklingi sem kann að stjórna, er úrræðagóður og hefur gaman af því að vera þar sem hlutirnir gerast.

Sem verkstjóri ertu lykilmaður í daglegum rekstri. Þú heldur utan um starfsfólk og verkefni, tryggir að framleiðslan gangi vel og bregst við þegar eitthvað óvænt kemur upp.

Þetta er ekki starf þar sem þú stjórnar úr fjarlægð. Við leitum að verkstjóra sem er sýnilegur í framleiðslunni, þekkir fólkið sitt og hefur góða yfirsýn yfir það sem er að gerast hverju sinni. Einstaklingi sem tekur ábyrgð, leysir málin og fær fólk með sér.

Þú vinnur náið með framleiðslustjóra og færð tækifæri til að hafa áhrif á daglegan rekstur og áframhaldandi þróun framleiðslunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkstjórn í framleiðslu og pökkun
  • Skipulagning verkefna og mannafla
  • Leiðsögn, stuðningur og þjálfun starfsfólks
  • Undirbúningur, stillingar og gangsetning framleiðslu- og pökkunarbúnaðar
  • Eftirlit með framleiðslu, afköstum, gæðum og rýrnun
  • Að tryggja að verkferlum, hreinlæti og góðri umgengni sé fylgt
  • Að leysa úr þeim málum sem koma upp í daglegum rekstri
  • Umsjón með vélum og tilfallandi viðhaldi
  • Þátttaka í umbótum og þróun á framleiðslu
  • Að finna leiðir til að einfalda vinnu, bæta flæði og auka afköst
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkstjórn og starfsmannahaldi
  • Drifkraftur, áræðanleiki og stundvísi
  • Vélvirkja / Rafvirkja menntun eða álíka æskileg
  • Íslensku og Enskukunnátta
  • Lyftararéttindi eru æskileg
  • Tölvukunnátta er nauðsynleg
  • Hreint sakarvottorð
Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðahraun 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar