
Verkstjóri í matvælavinnslu
Íslensk hollusta leitar að öflugum, röskum og drífandi einstaklingi til að stýra daglegri framleiðslu fyrirtækisins. Við leitum að verkstjóra sem gengur beint í framleiðsluverkin og leiðir annað starfsfólk áfram með markvissri stjórnun og góðu fordæmi.
Framleiðsla okkar skiptist í þurrvöru og blautvöru þar sem við vinnum og pökkum hágæða íslensku hráefni úr sjó og af landi, ásamt því að framleiða fjölbreytta jurtadrykki. Vinnuumhverfið er kvikt og kallar á mikinn röskleika, skýra sýn og getu til að taka ákvarðanir fljótt og örugglega.
Helstu verkefni:
-
Virk þátttaka og verkstjórn á gólfi í öllum skrefum framleiðslunnar, bæði í þurr- og blautvinnslu (vinnsla, blöndun, átöppun, pökkun, merkingar og frágangur).
-
Skipulagning framleiðslu, aðfanga og eftirlit með öryggisbirgðum
-
Greining og skjót viðbrögð við frávikum sem kunna að koma upp í framleiðsluferlinu.
-
Virk þátttaka í vöruþróun, frá hugmynd að lokaafurð.
-
Gæðaeftirlit til að tryggja að ströngustu hreinlætis- og gæðakröfum sé fylgt í hvívetna.
-
Skráning gagna og almenn tölvuvinna tengd framleiðslu og birgðastýringu.
Hæfniskröfur:
- Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
-
Reynsla af verkstjórn og færni til að stýra fólki og ferlum á árangursríkan og faglegan hátt.
-
Reynsla úr matvæla- eða drykkjaframleiðslu er mikill kostur.
- Reynsla af vélavinnu, og almennu viðhaldi
-
Góð almenn tölvukunnátta.
-
Ríkt frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og mikil sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Geta til að skila af sér vönduðu verki og halda yfirsýn undir álagi.
Við bjóðum:
-
Líflegt og fjölbreytt starf í ört vaxandi fyrirtæki sem vinnur með íslenska náttúru.
-
Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á framleiðsluferla, vöruþróun og daglegan rekstur.
-
Metnaðarfullan vinnustað þar sem lagt er upp með fagmennsku, samvinnu og árangur.
Enska
Íslenska








