Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk

Framleiðslustjóri Þörungaverksmiðjunnar

Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum vantar framleiðslustjóra til starfa.

Framleiðslustjóri hefur umsjón með daglegum rekstri og framleiðslu verksmiðjunnar og vinnur náið með starfsfólki að því að tryggja öruggan og skilvirkan rekstur. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér skipulagningu framleiðslu, flutninga og birgðahald ásamt skráningum og skýrslugerð.

Verksmiðjan gengur allan sólahringinn flesta daga ársins. Afurðir verksmiðjunnar eru úrvals mjöl úr þangi og þara sem selt er út um allan heim.

Öryggiskröfur eru strangar og er mikilvægt að framleiðslustjóri hafi sterka öryggisvitund og taki virkan þátt í því öryggisstarfi sem fer fram í Þörungaverksmiðjunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri og framleiðslu verksmiðjunnar
  • Skipulagning og umsjón með flutningum að og frá verksmiðju
  • Tollafgreiðsla og tilheyrandi skýrslugerð
  • Umsjón með tímaskráningum starfsfólks
  • Skráning og utanumhald á aðföngum og birgðum
  • Talningar og skráningar á lager
  • Eftirlit með framleiðslu og verklagi
  • Virk þátttaka í öryggisstarfi verksmiðjunnar
  • Önnur verkefni sem tengjast daglegum rekstri verksmiðjunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af framleiðslu, verkstjórn eða sambærilegu starfi er kostur
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Nákvæmni við skráningar og utanumhald
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Ökuskírteini
  • Sterk öryggisvitund
Fríðindi í starfi
  • Aðstoð við að útvega húsnæði eftir þörfum
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Akstursstyrkur þar sem við á
  • Greiðsla vegna síma- og netnotkunar í starfi
Auglýsing birt24. ágúst 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Karlsey verksmiðjuh 139663, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.BirgðahaldPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Microsoft 365PathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SharePointPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.WindowsPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar