

Starfsmaður í uppsetningu á náttúrustein
Við leitum af áreiðanlegum, sjálfstæðum og jákvæðum einstakling til starfa í uppsetningateymið okkar. Starfið felst aðallega í sér uppsetningu á borðplötum og annarri sérsmíði úr náttúrustein. En viðkomandi þarf einnig að vera tilbúinn að ganga í öll tilfallandi störf innan framleiðslunnar. Gott væri ef viðkomandi væri með menntun í húsasmíði, en góð starfsreynsla eða gott verkvit getur einnig komið í stað menntunar. En viðkomandi þarf að geta lesið framleiðsluteikningar og skilað vönduðum frágangi. Vinnutími er 8/9 - 16/17 mánudaga til föstudaga. Yfirvinna stundum í boði. Bílpróf er skilyrði. Við leggjum mikla áherslu á stundvísi, snyrtimennsku og góða samvinnu við samstarfsfólk. Einnig að borin sé virðing fyrir eignum og eigum viðskiptavina okkar. Starfið getur verið líkamlega erfitt þar sem verið er að bera þunga hluti.
Uppsetning og mælingar á borðplötum og annarri sérsmíði úr náttúrustein
Tilfallandi störf innan framleiðslunnar
Viðkomandi þarf að vera skipulagður, ábyrgur og lausnamiðaður
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Góð þjónustulund
Bílpróf er skilyrði
Lyftarapróf er kostur
Íslensku og/eða enskukunnátta
Hreint sakarvottorð
Verður að vera líkamlega hraust/ur
Íslenska
Enska










