Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Verkefnastjóri skjalavinnslu

Sveitarfélagið Árborg leitar að metnaðarfullum starfsmanni í 100% stöðu verkefnastjóra í skjalavinnslu á skjalasafn bæjarskrifstofa. Verkefnastjóri er staðgengill skjalastjóra.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem þjónustulund og greiningarhæfni spila stórt hlutverk. Sveitarfélagið er í innleiðingu á nýju skjalastjórnunarkerfi og spennandi verkefni framundan.

 Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka nýrra erinda, flokkun, skönnun, skráning og frágangur.  
  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks tengt skjalavörslu.
  • Frágangur á eldri skjölum í fjarsafn.   
  • Þátttaka í innleiðingu og þróun stafrænna lausna.  
  • Þátttaka í viðhaldi og mótun verklagsreglna við móttöku og meðferð erinda. 
  • Staðgengill skjalastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.  
  • Reynsla af skjalastjórnun og notkun rafrænna skjalavistunarkerfa skilyrði.  
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
  • Reynsla og þekking á vinnu með Microsoft 365. 
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði.  
  • Góð færni í mannlegum samskiptum, greiningarhæfni, þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð nauðsynleg.  
  • Þekking á starfsemi sveitarfélaga er kostur.  
Auglýsing birt27. ágúst 2025
Umsóknarfrestur10. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar