Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir

Verkefnastjóri Reykjavíkurflugvallar

Hefur þú góða skipulagshæfni, lausnamiðaða nálgun og brennandi áhuga á rekstri og öryggismálum?

Við leitum að öflugum verkefnastjóra í umdæmi 1 sem hefur metnað til að leiða fjölbreytt verkefni sem tengjast daglegum rekstri, samningagerð, áhættustjórnun og greining á atvikum. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í síbreytilegu umhverfi.
Verkefnastjórinn starfar í umdæmi sem nær frá Búðardal til Kirkjubæjarklausturs.

Helstu verkefni

  • Halda utan um grunnskráningar í gagnagrunna og atvikaskráningakerfi

  • Aðkoma að samningagerð

  • Aðkoma að áhættustjórnun, úttektum og úrvinnslu frávika

  • Taka þátt í úrbótahópum og halda utan um vinnu þeirra

  • Samskipti við ytri aðila, s.s. rekstraraðila, leigutaka, Samgöngustofu og aðra hagsmunaaðila

  • Styðja við og leita lausna við bæði tekjuöflun og hagræðingu í rekstri

  • Framkvæma áhættumöt og þróa forvarnaráætlanir

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af verkefnastjórnun og samhæfingu fjölbreyttra verkefna

  • Þekking á áhættustjórnun, samningagerð og úttektum

  • Góð samskipta- og skipulagshæfni

  • Góð tölvufærni

  • Geta til að vinna í kviku og síbreytilegu umhverfi

Starfsstöð: Reykjavíkurflugvöllur

Nánari upplýsingar veitir Viðar Jökull Björnsson umdæmisstjóri, [email protected]

Auglýsing birt2. ágúst 2025
Umsóknarfrestur17. ágúst 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavíkurflugvöllur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar