Kerecis
Kerecis

Verkefnastjóri í vöruþróun

Verkefnastjóri í vöruþróun hjá Kerecis er hluti af reyndu teymi sérfræðinga í lækningatækjum sem bera ábyrgð á að þróa og koma á markað næstu kynslóð lækningartækja til meðferðar á mismunandi tegundum sára. Starfsmaðurinn mun starfa á skrifstofu Kerecis í Reykjavík

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og stýring á vöruþróunar- og rannsóknarverkefnum innan þróunardeildar samkvæmt vöruþróunarferlum
  • Áætlanagerð verkefna með tilliti til tíma, kostnaðar og mannauðsþarfar
  • Miðla upplýsingum um stöðu verkefna og tryggja gagnsæi um stöðu þeirra
  • Samstilla hlutverk innan vöruþróunarteymisins og stuðla að góðum samskiptum innan verkefna
  • Tryggja gott samstarf við aðrar deildir innan fyrirtækisins og jafnframt utanaðkomandi aðila sem eiga þátt í því að koma vörunni á markað
  • Kynna stöðu verkefna reglulega innan deildar og til yfirmanna fyrirtækisins
  • Skipuleggja og taka þátt í hugmyndavinnu innan þróunardeildar
  • Ábyrgð á vissum skjölum í þróunarferli og möguleg þáttaka í annari skjalagerð tengdri þróunarvinnu
  • Önnur verkefni og ábyrgð eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.S. gráða. Æskilegt að það sé innan verkfræði eða raungreina.
  • MPM nám er æskilegt.
  • Að lágmarki 3ja ára reynsla sem verkefnastjóri.
  • Reynsla í vöruþróun, helst í lækningatækjaiðnaði
  • Reynsla af vinnu með FDA og ISO-vottaðar vörur (21 CFR 820 og ISO 13485)
  • Reynsla af vinnu í alþjóðlegu umhverfi er kostur.
  • Gott vinnusiðferði og metnaður til þess að skila hágæðavörum samkvæmt tímaáætlun og innan fjárhagsáætlunar
  • Jákvæðni og drifkraftur
  • Forystuhæfileikar: Geta til að hvetja og leiðbeina öðrum til þess að ná settum markmiðum
  • Framúrskarandi kunnátta á Microsoft Office pakkanum, jafnframt Microsoft Project eða öðrum sambærilegum verkefnastjórnunar hugbúnaði
  • Geta til að starfa með þverfaglegum hópum
  • Nákvæmni og góð skipulagshæfni
  • Góð samskiptahæfni (munnleg og skrifleg) og geta til að koma fram
  • Þekking á reglugerðarumhverfi lækningartækja æskilegur
Auglýsing stofnuð5. maí 2024
Umsóknarfrestur14. maí 2024
Tungumálakunnátta
EnskaEnskaMjög góð
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar