Expectus
Expectus
Expectus

Sérfræðingur í viðskiptagreind (BI)

Expectus leitar að sérfræðingi í viðskiptagreind (BI) í framtíðarstarf. Ef þú skilur virði gagna og mikilvægi þeirra til ákvarðanatöku og árangurs í rekstri þá gæti þessi staða hentað þér.

Sérfræðingar Expectus aðstoða daglega stærstu fyrirtæki landsins í að móta og innleiða gagnadrifna menningu og hámarka þannig mælanlegan árangur þeirra.

Starf sérfræðings felst meðal annars í ráðgjöf við viðskiptavini og uppbyggingu viðskiptagreindarumhverfis eftir bestu aðferðarfræðum hverju sinni. Með réttu undirstöðunum aðstoðum við viðskiptavini okkar við að taka gagnadrifnar ákvarðanir.

Dagleg störf hjá Expectus eru fjölbreytt og hefur starfsfólk mikla möguleika á að hafa áhrif á sérhæfingu sína og þróun í starfi. Engir tveir dagar eru eins hjá Expectus!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti, ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
  • Mat á þörfum viðskiptavina og vinna við að svara þeim með tæknilausnum
  • Hönnun og uppbygging á mælaborðum til greiningar á stjórnendaupplýsingum
  • Skipulagning, hönnun og innleiðing á viðskiptagreindarlausnum (BI, Data & Analytics) hjá viðskiptavinum
  • Innleiðing á rauntímaeftirliti á viðskiptaferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegum greinum. Meistarapróf er kostur.
  • Þekking í gagnagrunnsforritun (s.s. SQL)
  • Góð þekking á Excel
  • Þekking á PowerBI og Tableau er kostur
  • Þekking á skýjaumhverfi, sér í lagi Azure, er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og vilji til að miðla þekkingu
  • Skapandi hugsun og hugmyndaauðgi ásamt hæfni til að koma hugmyndum á framfæri
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
  • Löngun til að vaxa í starfi og læra eitthvað nýtt
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Hádegisverður, snarl og drykkir á skrifstofunni
  • Möguleiki á að byggja upp sterkt tengslanet
  • Hressilegt félagslíf og mjög virkt starfsmannafélag
  • Íþrótta- og tækjastyrkur
Auglýsing stofnuð29. apríl 2024
Umsóknarfrestur19. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hönnun gagnagrunnaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar