

Verkefnastjóri – fjárhagslegar áreiðanleikakannanir
Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að öflugum verkefnastjóra til að bætast í hóp reyndra ráðgjafa á sviði fjárhagslegra áreiðanleikakannana (e. Financial due diligence). Við veitum fyrirtækjum, fjárfestingarsjóðum og fjármögnunaraðilum þjónustu og ráðgjöf í tengslum við kaup, sölu og sameiningar fyrirtækja. Ráðgjafar vinna náið með viðskiptavinum og veita virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki, sem skilur eftir verðmæta þekkingu.
Í grundvallaratriðum er tilgangur áreiðanleikakönnunar að samræma vitneskju og upplýsingar kaupanda og seljanda á félagi. Með ítarlegum fjárhagslegum greiningum stuðlar áreiðanleikakönnun að því að takmarka óvissu þannig að hægt sé að fækka verulega fyrirvörum og ábyrgðum í kaupsamningi um viðskiptin
Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun einstakra verkefna, undir handleiðslu reyndra ráðgjafa. Verkefnastjóri sinnir meðal annars greiningarvinnu og skýrsluskrifum, samskiptum við viðskiptavini og þjálfun reynsluminni ráðgjafa.
- Meistaragráða á sviði reikningshalds, fjármála, hagfræði eða skyldra greina
- Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla í fjármálum, reikningshaldi og/eða endurskoðun
- Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni á skýran og skilmerkilegan hátt
- Góð þekking á Microsoft Excel og PowerPoint
- Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki
- Þú hefur gaman af því að takast á við og leysa áskoranir
- Það er lítið mál fyrir þig að vinna sjálfstætt en virkar vel í teymi enda býrðu yfir samskiptafærni
- Geta til að tjá þig í ræðu og riti, með faglegum hætti, á íslensku og ensku
- Metnaður og áhugi til að læra og þróast í starfi í gegnum krefjandi verkefni á innlendum og alþjóðlegum vettvangi
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Styrki til foreldra
- Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi
- Launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi.
Enska
Íslenska










