Laugardalshöll  Íþrótta- og sýningarhöllin
Laugardalshöll Íþrótta- og sýningarhöllin

Vaktstjóri

Vaktstjóri óskast til starfa hjá Íþrótta- og sýningahöllinni ehf. (ÍSH) sem er rekstraraðili Laugardalshallarinnar. Um er að ræða 100% starf sem unnið er alla virka daga að jafnaði auk tilfallandi verkefna á öðrum tímum tengt viðburðum samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Hafa umsjón og verkstjórn með verkefnum.
• Bera ábyrgð á stýringu verkferla og útdeilingu verkefna til vaktmanna.
• Gæðaeftirlit verka.
• Kennsla og þjálfun starfsfólks. 
• Hafa frumkvæði að verkefnum, hagræðingu og sparnaði í verkum.
• Eftirlit og viðhald tækja og áhalda.
• Auk annarra verkefna skv. beiðni stjórnenda ÍSH.

 
Vaktstjóri kemur til með að vinna með hópi vaktmanna sem hefur það markmið að veita framúrskarandi þjónustu og sýna vönduð vinnubrögð við daglegan rekstur í Laugardalshöll.

Menntunar- og hæfniskröfur

Ekki eru gerðar sérstakar kröfur um menntun en umsækjandi þarf að hafa hæfni í verkefnastjórnun, skipulagshæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð, þjónustulund, dugnað til uppsetningar, þrifa og viðhalds auk almennri tölvufærni (outlook, word, excel).

Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af verkstýringu starfsfólks, hafi reynslu úr þjónustustarfi og hafi þekkingu og reynslu í viðhaldi og ræstingum.

Fríðindi í starfi

Líkamsrækt á vinnustað

Vinnutími

Vinnutími er 8:00 – 16:00 virka daga.
Vaktstjóri þarf að vera tilbúinn að fylla inn í stöður sem vantar með sínu vinnuframlagi og að taka aukavinnu ef þess er óskað samkvæmt samkomulagi.

Auglýsing birt14. október 2025
Umsóknarfrestur24. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Engjavegur 8, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.LyftaraprófPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkyndihjálpPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar