

Vaktmaður í farþegaþjónustu
Við leitum að aðila í starf vaktmanns í farþegaþjónustu, um er að ræða fullt starf á 5-5-4 vöktum (dag- og næturvaktir). Vaktmaður vinnur náið með hópstjórum og hefur góða yfirsýn yfir verkefni og verkferla deildarinnar.
Starfsstöð vaktmanns er í Samhæfingarstjórnstöð Isavia (APOC)
Helstu verkefni:
- Samræming PRM þjónustu í samstarfi við APOC
- Úthlutun og yfirsýn PRM beiðna og annarra verkefna.
- Vöktun á farþegaflæði og fyrirbyggjandi viðbrögð.
- Eftirlit með stöðu og staðsetningu á búnaði sem deildin þjónustar.
- Skráningar í upplýsingakerfi APOC.
- Samskipti við innri og ytri aðila.
Hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
- Góð tækni- og tölvukunnátta er skilyrði.
- Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar.
Starfsstöð: Keflavíkurflugvöllur
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknafrestur er til og með 1.september 2025.
Nánari upplýsingar veita hópstjórar farþegaþjónustu [email protected]
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.






