

Upplýsingafræðingur á bókasafn HR - Mótaðu framtíð þekkingar
Bókasafn Háskólans í Reykjavík leitar að kraftmiklum upplýsingafræðingi með sérfræðiþekkingu í bókfræðilegri skráningu og lýsigögnum, aukgóðrar þekkingará opnum aðgangi,í fjölbreytt og krefjandi starf.Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi. Starfið veitir ýmis tækifæri til að sýna frumkvæði með það að markmiði að skapa framúrskarandi náms- og vinnuumhverfi fyrir rannsakendur og nemendur.
Helstu verkefni
- Umsjón með skráningu upplýsinga um rannsóknaafurðir HR í IRIS og Opin vísindi
- Umsjón með fræðslu og aðstoð við rannsakendur varðandi notkun PURE
- Gerð leiðbeininga á vef bókasafnsins
- Önnur hefðbundin verkefni á háskólabókasafni eftir þörfum, t.d. innkaup, skráning, Skemman, kennslubókasafn sem og afgreiðsluvaktir
Viðkomandi er hluti af metnaðurfullu teymi bókasafnsins og vinnur náið með rannsóknaþjónustu HR og rannsakendum.
Hæfinskröfur
- Háskólamenntun í upplýsingafræði
- Reynsla af PURE rannsóknaskráningarkerfinu er kostur
- Reynsla af störfum við rannsóknir og/eða á háskólabókasafni er kostur
- Kunnátta á Ölmu æskileg og skráningaréttindi
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Mikil skipulagshæfni og frumkvæði í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta jafnt töluðu sem rituðu máli
- Góð tölvukunnátta nauðsynleg
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst.Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf
Nánari upplýsingar um starfið veita Ragna Björk Kristjánsdóttir, forstöðukona bókasafns ([email protected]) eða mannauðsdeild HR ([email protected]).
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní og skal umsóknum skilað á vef Háskólans í Reykjavík.Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Enska
Íslenska



