

Túlkar óskast - Túlkanet ehf
Túlkanet óskar eftir áreiðanlegum og ábyrgum einstaklingum til að sinna verkefnum við samfélagstúlkun. Um verktakavinnu er að ræða og verkefnin eru sveigjanleg og henta vel samhliða öðru starfi eða námi.
Við leitum að einstaklingum með fjölbreytta tungumálakunnáttu, meðal annars í spænsku, pólsku, arabísku, portúgölsku, litháísku, rúmensku, úkraínsku, rússnesku, víetnömsku, taílensku, kúrdísku og sómölsku, auk fjölmargra annarra tungumála.
Túlkunarverkefnin eru fjölbreytt og fara ýmist fram á staðnum eða í fjartúlkun.
Gott vald á íslensku og ensku, góð samskiptahæfni og sjálfstæð og fagleg vinnubrögð eru mikilvæg. Lögð er áhersla á nákvæmni, hlutleysi og trúnað í öllum verkefnum. Reynsla eða menntun á sviði túlkunar er kostur en ekki skilyrði.
Talar þú fleiri tungumál og hefur áhuga á túlkun? Við hvetjum þig til að sækja um!
Íslenska


