

Túlkar óskast - Diction Ísland ehf.
Þýðingastofan Diction Ísland ehf. leitar að hæfum og áreiðanlegum túlkum til að ganga til liðs við öflugan hóp túlka sem starfa á vegum fyrirtækisins. Vegna aukinnar eftirspurnar frá fyrirtækjum og einstaklingum leitum við að túlkum sem geta tekið að sér verkefni, einkum á höfuðborgarsvæðinu, í eftirfarandi tungumálapörum:
Íslensk tungumálapör
· enska ↔ íslenska
· franska ↔ íslenska
· portúgalska ↔ íslenska
· danska ↔ íslenska
· pólska ↔ íslenska
· litháíska ↔ íslenska
· rússneska ↔ íslenska
· rúmenska ↔ íslenska
Önnur tungumálapör
· rúmenska ↔ enska
· úkraínska ↔ enska
Í hverju felst starfið?
Um er að ræða verktakastarf. Þú ákveður hversu mörg verkefni þú tekur að þér.
Verkefnin eru að mestu á staðnum og vara venjulega frá hálftíma til nokkurra klukkustunda. Beiðnir koma frá fyrirtækjum og einstaklingum.
Það sem við leitum að
· Framúrskarandi kunnátta í viðkomandi tungumálum
· Prófgráða er ekki krafa - við metum tungumálafærni hvers og eins sérstaklega
· Góð samskiptahæfni og fagleg vinnubrögð
· Stundvísi, áreiðanleiki og samviskusemi
· Sveigjanleiki varðandi verkefni og vinnutíma
· Fyrri reynsla af túlkun er mikill kostur, en ekki krafa
Við bjóðum
· Samkeppnishæf kjör, miðað við starfsreynslu og hæfni hvers og eins
· Fjölbreytt úrval túlkaverkefna
· Tækifæri til að byggja upp langtímasamstarf við Diction Ísland ehf.
Um Diction Ísland ehf.
Diction Ísland ehf. hefur starfað á Íslandi síðan 2022 og er hluti af Diction Group ApS í Danmörku, sem hefur starfað síðan 2010. Við veitum opinberum aðilum, fyrirtækjum og einstaklingum á Norðurlöndunum þýðinga-, prófarkalestrar- og túlkaþjónustu.
Umsóknarferlið
Umsóknir eru teknar til skoðunar jafnóðum - Enginn umsóknarfrestur er í gildi.
Sendu okkur ferilskrána þína á [email protected] eða hér í gegnum Alfred.is. Í ferilskránni skaltu tilgreina tungumálakunnáttu þína, starfsreynslu og viðeigandi menntun, ásamt netfangi og símanúmeri.
Allir umsækjendur fá svar innan fjögurra vikna, óháð niðurstöðu.
Ef þú hefur spurningar eða telur að reynsla þín og hæfni falli vel að því sem við leitum að er þér velkomið að hafa samband við Julie Munkø mannauðsstjóra í gegnum netfangið [email protected]. Hún kemur þér síðan í samband við Andra Frey verkefnastjóra.
Við hlökkum til að heyra frá þér.
Enska
Íslenska