Youpret Ísland
Youpret Ísland
Youpret Ísland

Youpret leitar að fagtúlkum á skrá

Ertu fagtúlkur? Youpret leitar að öflugum liðsauka fyrir fjartúlkun og staðartúlkun um allt land. Við leitum sérstaklega að túlkum á eftirfarandi tungumálum:

  • Arabísku
  • Albönsku
  • Lettnesku
  • Litháísku
  • Pólsku
  • Rúmensku
  • Úkraínsku

Við bjóðum uppá:

  • Sveigjanlegan vinnutíma: Þú stjórnar þínu eigin vinnuálagi og velur verkefni sem henta þinni dagskrá.
  • Einfalt og nútímalegt viðmót: Haltu utan um allar bókanir og samskipti á einum stað í notendavænu smáforriti Youpret.
  • Gagnsæ og sanngjörn kjör: Í appinu okkar sérðu kjörin sem boðið er uppá áður en þú samþykkir að taka að þér verkefnið.

Við hvetjum túlka utan höfuðborgarsvæðisins líka til að sækja um þar sem við bjóðum uppá fjartúlkanir.

Sæktu um á vefsíðunni okkar eða hafðu samband á [email protected]

Youpret á Íslandi er hluti að rammasamningi fjársýslunnar.

Sem fyrsta B Corp-vottaða túlkafyrirtækið á Norðurlöndum stendur Youpret fyrir samfélagslega ábyrgð og gagnsæi. Markmið Youpret er að vera traustur og góður samstarfsaðili þar sem áhersla er lögð á góð kjör, gagnsæi, gott samstarf og stundvísar greiðslur.

Við viljum létta þér lífið. Snjallforritið okkar sér um utanumhaldið og lágmarkar skriffinnsku svo þú getir einbeitt þér að því sem þú gerir best – að túlka. Að auki tryggjum við þér öflugan stuðning og gott bakland frá starfsfólki okkar í öllum þínum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samfélagstúlkun
  • Fjartúlkun
  • Geta unnið af heilindum, gætt fyllsta trúnaðar og fylgt siðareglum túlka í hvívetna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af túlkun og/eða háskólagráða er æskileg
  • Sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur25. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar