

Þroskaþjálfi eða sérkennari óskast í Laugalandsskóla
Laugalandsskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða sérkennara til starfa frá og með 1. ágúst 2026.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem unnið er að velferð og stuðningi nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans, foreldra og fagfólk. Viðkomandi verður hluti af stoðþjónustu skólans og kemur að kennslu, þjálfun og gerð einstaklingsáætlana fyrir nemendur.
• Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk
• Vera partur af stoðþjónustu skólans og halda utan um mál einstaka nemenda
• Annast kennslu og þjálfun nemenda
• Halda utan um gerð einstaklingsáætlana
• Vinna samkvæmt uppeldisaðferð Jákvæðs aga
• Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
• Vinna eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum
• Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi
• Leyfisbréf til kennslu
• Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
• Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
• Mjög góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
• Stundvísi og samviskusemi
• Mjög góð íslenskukunnátta
• Hreint sakavottorð
Íslenska










