
Þjónustustjóri
Viltu taka þátt í að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir starfsfólk og viðskiptavini fyrirtækja framtíðarinnar?
Þrífstu best í teymisvinnu?
Ert þú jákvæður, skipulagður og útsjónarsamur einstaklingur sem vill taka þátt í að létta viðskiptavinum okkar lífið með því að veita framúrskarandi þjónustu?
Ef þetta hljómar vel þá er staða þjónustustjóra fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur þjónustusamninga og samskipti við viðskiptavini
- Dagleg stýring starfsfólks og verkefna
- Ráðningar starfsfólks, þjálfun og kennsla
- Eftirlit með gæðum þjónustunnar og ráðgjöf til viðskiptavina
- Innleiðing breytinga, nýrra verkefna og verklags
- Skráningar og eftirlit með tekjum og kostnaði
- Skráning tíma til launa
- Almenn starfsmannamál
- Önnur verkefni að beiðni teymisstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þjónustustjóri þarf að vera sérlega lipur í mannlegum samskiptum
- Sýna jákvætt viðhorf, nákvæmni og metnað til að ná árangri
- Vera þjónustulundaður, lausnamiðaður og sýna frumkvæði
- Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
- Góð tölvufærni og hæfni til að tileinka sér helstu viðskiptakerfi
- Hæfni til að halda utan um stór og lítil verkefni
- Góð gæðavitund
- Íslensku og ensku kunnátta, bæði ritað og talað mál
- Snyrtimennska og gott auga fyrir smáatriðum
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Furuvellir 7, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannauðsstjórnunMannleg samskiptiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

