Teya Iceland
Teya Iceland
Teya Iceland

Þjónusturáðgjafi í Viðskiptatengslum

Vilt þú ganga til liðs við ört vaxandi alþjóðlegt fjártæknifyrirtæki? Teya leitar að einstaklingum með ríka þjónustulund sem geta tekist á við krefjandi verkefni.

Sem hluti af viðskiptatengslum Teya tekur þú virkan þátt í að þjónusta mikilvægasta hluta fyrirtækisins, viðskiptavini Teya. Viðskiptavinir okkar eru hjarta fyrirtækisins og viljum við bjóða upp á öll þau tæki og tól sem viðskiptavinir okkar þurfa til þess að vaxa og dafna á íslenskum fyrirtækjamarkaði. Okkar markmið er að mynda og viðhalda langtíma viðskiptasambandi við viðskiptavini ásamt því að sjá fyrir og mæta þeirra þörfum.

Starfið:

Þú munt starfa í framlínu Teya og viðhalda viðskiptatengslum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina fyrirtækisins. Meginverkefni þín verða að svara beiðnum sem berast Teya í gegnum síma, tölvupóst og netspjall. Þú verður rödd viðskiptavina okkar og munt hafa áhrif á þróun viðskiptalausna innan Teya.

Viðskiptatengsl Teya:

Teymið samanstendur af kraftmiklum hópi með sterka liðsheild. Okkar áhersla eru viðskiptavinir Teya og hver dagur fer í það að þjónusta þá eftir okkar bestu getu. Við erum árangursmiðuð og við njótum þess að vinna í hópi skemmtilegs fólks. Þú verður hluti af framlínu viðskiptatengsla Teya og tekur virkan þátt í uppbyggingu fyrirtækisins hér innanlands og utan.

Við leitum að starfsfólki í fullt starf. Teymið starfar á hefðbundnum skrifstofutíma, mánudag - föstudag.

Við viljum heyra í þér ef þú;

  • Hefur ríka þjónustulund
  • Ert fær í mannlegum samskiptum
  • Vinnur vel í teymi
  • Árangursmiðuð/aður og kappgjörn/gjarn
  • Þolir að vinna undir álagi
  • Tilbúin/nn að læra og takast á við nýjar áskoranir
  • Talar íslensku og ensku

Vinsamlegast sendið inn ferilskrá á ensku.

Fríðindi í starfi

Kjör og fríðindi

  • Gjaldfrjálst aðgengi að léttu fæði á vinnutíma
  • Niðurgreiddur hádegismatur í mötuneyti
  • Heilsustyrkur og aðrir styrkir í gegnum SSF stéttarfélag
  • Tækifæri til að þróast í starfi alþjóðlega
  • Frábær starfsandi og virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt22. maí 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar